Menntaráð - 163. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Karen Rúnarsdóttir - formaður
- Hildur Karen Sveinbjarnardóttir - aðalfulltrúi
- Hildur Einarsdóttir - aðalfulltrúi
- Arnór Aðalsteinsson - aðalfulltrúi
- Gunnar Sær Ragnarsson - aðalfulltrúi
- María Ellen Steingrímsdóttir - aðalfulltrúi
- Björn Þór Rögnvaldsson - áheyrnarfulltrúi
- Nína Berglind Sigurgeirsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Irpa Fönn Hlynsdóttir - varafulltrúi
- Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
- Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir - fulltrúi skólastjóra
Starfsmenn
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Ingibjörg Ýr Pálmadóttir - starfsmaður menntasviðs
Ritari
- Ingunn Mjöll Birgisdóttir
Dagskrá fundar
Fundaráætlun menntaráðs 2026-2027 lögð fram til samþykktar.
Umræða um fundaráætlun.
Menntaráð samþykkir fundaáætlun starfsárið 2026-2027, með þeirri breytingu að fundir hefjist kl. 15:30.
Deildarstjóri grunnskóladeildar kynnir nýtt samræmt námsmatskerfi, sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur þróað fyrir grunnskóla landsins, til upplýsinga fyrir menntaráð.
Menntaráð þakkar góða kynningu á Matsferli Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.
03
Tillaga að greiningu og áætlun um notkun snjalltækja í skóla- og frístundastarfi í Kópavogi 2026-2030
Tillaga að greiningu og áætlun um notkun snjalltækja í skóla- og frístundastarfi í Kópavogi 2026-2030 lögð fram til samþykktar.
Bókun: Miðflokkurinn styður heilshugar endurskoðun á notkun snjalltækja í skólum Kópavogs og telur jafnframt að draga eigi verulega úr notkun þeirra þar sem hún þjónar ekki skýrum námslegum tilgangi.
Því miður virðist tillagan sem hér liggur fyrir innihalda fleiri frasa en lausnir.
Í stað afdráttarlausra markmiða um minni skjánotkun og betri námsárangur er boðað nýtt margra ára stefnumótunarferli, ný viðmið, hæfnirammar og enn einn starfshópurinn.
Sérstaklega vekur athygli að matsrannsókn á spjaldtölvunotkun í grunnskólum Kópavogs frá 2023 virðist ekki lögð til grundvallar vinnunni, þrátt fyrir að þar hafi þegar komið fram margar þeirra áhyggja sem foreldrar og Miðflokkurinn hafa bent á.
Áður en ný greiningarvinna hefst hlýtur að þurfa að svara hvað varð um umbótavinnuna sem átti að fylgja þeirri rannsókn og hvaða árangri hún skilaði.
Nína Berglind Sigurgeirsdóttir
Meirihlutinn fagnar stuðningi Miðflokksins við tillöguna og deilir að miklu leyti áhyggjum fulltrúa flokksins af of mikilli notkun spjaldtölva og snjalltækja í skólum. Meirihlutinn telur því mikilvægt að greina hvenær notkun snjalltækja styður við nám og hvenær hún gerir það ekki og takmarka notkun þeirra við þau tilvik þar sem þau stuðla að betra námi, líkt og lagt er upp með í greinargerðinni.
Meirihlutinn byggir tillöguna meðal annars á mati sem framkvæmt var á árunum 2021?2023 og tók til innleiðingar spjaldtölva í skólum frá árinu 2015. Nú er horft til framtíðar, reynslunni ríkari.
Gert er ráð fyrir samstarfi við þriðja aðila um þróun mælikvarða og mat á áhrifum stafrænnar tækni á nám, kennslu og skólastarf, líkt og fram kemur í tillögunni.
Eins og fram kemur í greinargerðinni er, að undangengnu eðlilegu samráði, lagt upp með að börnin okkar líti upp úr skjám og á skjóðu.
Karen Rúnarsdóttir
Hildur Karen Sveinbjarnardóttir
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Hildur Einarsdóttir
Gunnar Sær Ragnarsson
Bókun:Fulltrúar Samfylkingarinnar og Viðreisnar fagna því að ráðist verði í heildstæða greiningu og mótun heildstæðrar áætlunar um notkun snjalltækja, stafræna hæfni og menntatækni í skóla- og frístundastarfi í Kópavogi til ársins 2030. Mikilvægt er að stafræn tækni sé nýtt í skýrum kennslufræðilegum tilgangi, styðji sannanlega við nám og taki mið af velferð, öryggi og heilsu og ólíkum þörfum barna.Sérstaklega þarf að meta notkun spjaldtölva á yngsta stigi og sýna fram á með hvaða hætti hún styður við nám, þroska og námsárangur. Skjátími ungra barna í skólastarfi þarf að eiga sér skýran tilgang og vera réttlætanlegur út frá ávinningi fyrir nemendur.
Jafnframt þarf að tryggja að nemendur á miðstigi og unglingastigi öðlist fjölbreytta stafræna hæfni og fái markvissa þjálfun í fingrasetningu, ritvinnslu og notkun tölva og algengra hugbúnaðarlausna. Færni á spjaldtölvur og snertiskjái nægir ekki ein og sér sem undirbúningur fyrir framhaldsskóla, atvinnulíf og virka þátttöku í stafrænu samfélagi.
Áætlunin þarf einnig að ná til notkunar spjaldtölva utan skólatíma, aðgangsstýringa og aðgengis að samfélagsmiðlum og samskiptaforritum. Mikilvægt er að skólaumhverfið styðji foreldra við að setja börnum skýr mörk um skjánotkun.
Björn Þór Rögnvaldsson
María Ellen Steingrímsdóttir
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Menntaráð samþykkir tillögu að vinnslu áætlunar um notkun snjalltækja í skóla- og frístundastarfi 2026-2030 og felur menntasviði að annast innleiðingu hennar í samræmi við markmið og áherslur áætlunarinnar.
Berþóra Þórhallsdóttur vék af fundi kl. 15.45
- Greinargerð með tillögu að greiningu á notkun snjalltækja í skólastarfi og gerð áætlunar um stafræna hæfni og menntatækni í skóla- og frístundastarfi í Kópavogi 2026-2030
- Tillaga að greiningu og áætlun um notkun snjalltækja í skóla- og frístundastarfi í Kópavogi 2026-2030
- Ágrip - tillaga að greiningu og áætlun um notkun snjalltækja í skóla- og frístundastarfi í Kópavogi 2026-2030
04
Fyrirspurn Karenar Rúnarsdóttur og Hildar Karenar Sveinbjarnardóttur, formanns og varaformanns menntaráðs, um samanburð á skólaeinkunn og niðurstöðu matsferils
Lögð er fram til samþykktar fyrirspurn Karenar Rúnarsdóttur, formanns menntaráðs og Hildar Karenar Sveinbjarnardóttur, varaformanns menntaráðs.
Menntaráð samþykkir að fela menntasviði að svara fyrirspurn Karenar Rúnarsdóttur, formanns menntaráðs og Hildar Karenar Sveinbjarnardóttur, varaformanns menntaráðs.