Menntaráð - 137. fundur
í Hörðuvallaskóla
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hanna Carla Jóhannsdóttir - formaður
- Hildur Karen Sveinbjarnardóttir - aðalmaður
- Jónas Haukur Thors Einarsson - aðalmaður
- Hjördís Einarsdóttir - aðalmaður
- Donata Honkowicz Bukowska - aðalmaðurBoðaði forföllDonata Honkowicz Bukowska - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Einar Örn Þorvarðarson - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
- Tryggvi Felixson - aðalmaðurBoðaði forföllTryggvi Felixson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Kristgerður Garðarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Karen Rúnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristín Sigurðardóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Ágúst Frímann Jakobsson - starfsmaður nefndar
Ritari
- Ágúst Frímann Jakobsson
Í upphafi fundar kynntu þær Sigríður Theódóra Egilsdóttir og Sigurrós Jóna Oddsdóttir draumagerðarsmiðjuna sem er verkefni sem unnið er í Hörðuvallaskóla með styrk frá Nýsköpunarsjóði mennta- og barnamálaráðuneytisins. Menntaráð þakkar áhugaverða kynningu sem og góðar veitingar í upphafi fundar.
Dagskrá fundar
Amanda K. Ólafsdóttir og Ingunn Mjöll Birgisdóttir mættu til fundar undir 1. og 2. lið til að kynna aðgerðaáætlanir menntasviðs.
Aðgerðaáætlun menntasviðs fyrir árið 2024. Kynning á stöðu mála í árslok.
Amanda K. Ólafsdóttir og Ingunn Mjöll Birgisdóttir kynntu umfang og framkvæmd aðgerða í áætlun ársins 2024.
Kynning á aðgerðaáætlun menntasviðs fyrir árið 2025
Amanda K. Ólafsdóttir og Ingunn Mjöll Birgisdóttir kynntu markmið þeirra aðgerða sem fyrirhugaðar eru á árinu 2025 ásamt breytingu á vinnulagi við utanumhald aðgerða. Menntaráð mun fá ítarlegri kynningu á aðgerðunum síðar.
Kynning á drögum að tillögum í grunnskólamálum sem unnar eru í framhaldi af heimsóknum bæjarstjóra í grunnskólana í september og október 2024. Gögnin eru á vinnslustigi og því trúnaðarmál.
Lagt fram.
Lögð fram skýrsla um úttekt á innra mati grunnskóla í Kópavogi. Úttektin fór fram í nóvember 2024.
Dagskrárlið frestað.
Lögð fram tillaga frá Donata Bukowska um að aflað verði upplýsinga sem varða skólabókasöfn í Kópavogi.
Vísað til úrvinnslu á menntasviði.
Ósk frá Lindaskóla um endurskoðun á viðmiðum fyrir skóladagatöl grunnskóla fyrir skólaárið 2025-2026.
Menntaráð samþykkir að breyta viðmiðum um skóladagatöl grunnskóla fyrir skólaárið 2025-2026 þannig að grunnskólar hafi leyfi til að hafa tvo tvöfalda daga á skóladagatali.
Lögð fram skýrsla um endurmenntun á vegum grunnskóladeildar skólaárið 2023-2024.
Dagskrárlið frestað.
Fundargerð 146. fundar íþróttaráðs lög fram til kynningar.
Lögð fram fundargerð í 33 liðum.
Fundargerð 167. fundar leikskólanefndar lögð fram til kynningar.
Lögð fram fundargerð í 11 liðum.