Menntaráð - 157. fundur
í Kóraskóla
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hanna Carla Jóhannsdóttir - formaður
- Hildur Karen Sveinbjarnardóttir - aðalmaður
- Jónas Haukur Thors Einarsson - aðalmaður
- Hjördís Einarsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllHjördís Einarsdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Björn Þór Rögnvaldsson - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
- Tryggvi Felixson - aðalmaður
- María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristgerður Garðarsdóttir - aðalmaður
- Karen Rúnarsdóttir - aðalmaður
- Sigrún Bjarnadóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Ingibjörg Ýr Pálmadóttir - starfsmaður menntasviðs
Ritari
- Ingibjörg Ýr Pálmadóttir
Dagskrá fundar
Inga Fjóla Sigurðardóttir, skólastjóri Kóraskóla, og Sindri Þór Ágústsson, forstöðumaður félagsmiðstöðvar, taka á móti menntaráði og ræða áhugaverða þætti í skólastarfinu og samstarfið sín á milli um nálgun við nemendur.
Ingu Fjólu Sigurðardóttur, skólastjóra Kóraskóla, og Sindra Þór Ágústssyni, forstöðumanni félagsmiðstöðvarinnar Kúlunnar, er þökkuð góð kynning.
Umræður.
Inga Fjóla og Sindri Þór víkja af fundi kl. 16:59.
Málið var lagt fyrir fund menntaráðs 3. febrúar 2026 og var frestað til frekari gagnaöflunar. Málið er nú lagt fyrir að nýju ásamt umsögn foreldraráðs skólans.
Tillaga um tilfærslu á skipulagsdegi frístundar 2025-2026 í Barnaskóla Kársness lögð fram til samþykktar.
Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum tilfærslu á skipulagsdegi frístundar Barnaskóla Kársness. Menntaráð leggur áherslu á að hér sé um undanþágu að ræða vegna sérstakra aðstæðna.
Aðgerðaáætlun menntasviðs 2026 lögð fram til samþykktar.
Amanda K. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri menntasviðs, kynnti aðgerðaráætlun menntasviðs 2026.
Menntaráð samþykkir aðgerðaráætlun menntasviðs 2026 með öllum greiddum atkvæðum.
Svör við tillögum Barna- og ungmennaþings 2025 lögð fram til kynningar.
Amanda K. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri menntasviðs, kynnti svör við tillögum Barna- og ungmennaþings Kópavogs.
Amöndu er þökkuð góð kynning.
Svör við tillögum Barna- og ungmennaþings 2025 lögð fram til kynningar.
Amanda K. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri menntasviðs, kynnti svör við tillögum Barna- og ungmennaþings Kópavogs.
Amöndu er þökkuð góð kynning.
Kópurinn 2026, viðurkenning menntaráðs vegna skóla- og frístundastarfs, lagður fram til kynningar.
Viðurkenning menntaráðs Kópavogs til grunnskóla- og frístundastarfs á vegum Kópavogsbæjar 2026 lögð fram til kynningar.
Menntaráð kýs þriggja manna valnefnd:
Hanna Carla Jóhannsdóttir fyrir hönd meirihluta.
María Ellen Steingrímsdóttir fyrir hönd minnihluta.
Karen Rúnarsdóttir fyrir hönd foreldra.
Formaður valnefndar er: Hanna Carla Jóhannsdóttir