Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 4. fundur
Fjarfundur - Microsoft Teams
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Guðmundur Gísli Geirdal - formaður
- Björg Baldursdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
- Ingveldur Jónsdóttir - aðalmaður
- Hákon Helgi Leifsson - aðalmaður
- Axel Þór Eysteinsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðlaug Ósk Gísladóttir - Deildarstjóri þjónustudeild fatlaðra
Ritari
- Guðlaug Ósk Gísladóttir
Dagskrá fundar
Fyrirspurn fulltrúa í notendaráði. Lagt fram til umræðu
Notendaráð fatlaðs fólks brýnir fyrir umhverfissviði að bæta úr aðgengismálum í bænum og að hugað verði sérstaklga að niðurtektum á kantbrúnum sem ekki mega vera hærri en 2 cm skv. reglum vegagerðarinnar. Einnig þarf að gæta að því að halli á niðurtektum sé ekki of mikill sbr. reglur vegagerðarinnar.
Notendaráð fatlaðs fólks fer fram á að gerð verði óháð úttekt á aðgengismálum í bænum. Málinu vísað til úrlausnar.
Notendaráð fatlaðs fólks bendir á mikilvægi þess að hugað sé að hálkuvörnum og snjómokstri sérlega m.t.t. almennissamganga og gönguleiða skólabarna.
Reglur um NPA - aðstoðarverkstjórn. Óskað eftir umsögn notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks.
Notendaráð fatlaðs fólks samþykkir fyrir sitt leiti útreikninga á aðstoðarverkstjórn.
Fulltrúar ÖBÍ samþykkja útreikninga um aðstoðarverkstjórn í NPA, með fyrirvara um að takmörkun á fjölda samninga sem gert er ráð fyrir í reglum um NPA er ekki í samræmi við lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Það kemur skýrt fram í lögunum að sveitarfélög bera ábyrgð á að veita þeim NPA þjónustu sem þess þurfa.
Bráðabirgðaákvæðið í lok laganna var hugsað til þess að liðka fyrir innleiðingu þjónustunnar en átti aldrei að vera takmarkandi.
Reglur um styrki til verkfæra- og tækjakaupa skv. 25 gr. laga. Óskað eftir umsögn notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks um reglurnar
Notendaráð fatlaðs fólks samþykkir fyrir sitt leiti reglur um styrki til náms-, verkfæra og tækjakaupa skv. 25. gr.laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.