Til baka í nefndaryfirlit
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 20. fundur
í Vallakór 4
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Björg Baldursdóttir - formaður
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
- Signý Sigurrós Skúladóttir - aðalmaður
- Ingveldur Jónsdóttir - varaformaður
- Hekla Björk Hólmarsdóttir - aðalmaður
- Frímann Sigurnýasson - varamaður
Starfsmenn
- Jón Kristján Rögnvaldsson - starfsmaður velferðarsviðs
- Kristín Þyri Þorsteinsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs
Ritari
- Kristín Þyri Þorsteinsdóttir
Dagskrá fundar
Almenn mál - umsagnir og vísanir
Kynning frá umhverfissviði á drögum lóðarhafa að byggingaráformum á Fannborgarreit.
Notendaráð þakkar Elvari Inga Jóhannessyni frá Örugg verkfræðistofu greinargóða kynningu á aðgengismálum á framkvæmdartíma.
Fulltrúi verkkaupa kynnti hugmyndir að lausnum til að bæta aðgengi á framkvæmdasvæðinu.
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks ítrekar mikilvægi þess að aðgengi fólks með hreyfihömlun sé tryggt meðan á framkvæmdum stendur á Fannborgarreit.
Almenn mál - umsagnir og vísanir
Lögð fram til kynningar og umræðu endurskoðuð gjaldskrá ásamt breytingum á reglum um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.
Karítas Eik Sandholt er þökkuð góð kynning á breytingum á gjaldskrá vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk hjá Kópavogsbæ. Notendaráð þakkar fyrir kynntar reglur.