Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 14. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Björg Baldursdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllHeiðdís Geirsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaðurBoðaði forföllThelma Bergmann Árnadóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Magnús Þorsteinsson - aðalmaður
- Ingveldur Jónsdóttir - varaformaður
- Salóme Mist Kristjánsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllFrímann Sigurnýasson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Hekla Björk Hólmarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Kristján Rögnvaldsson - starfsmaður velferðarsviðs
- Kristín Þyri Þorsteinsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs
- Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Jón Kristján Rögnvaldsson
Dagskrá fundar
Drög að nýjum reglum Kópavogsbæjar um stuðnings- og stoðþjónustu lögð fram til kynningar og umræðu ásamt minnisblaði verkefnastjóra dags. 6.12.2023 og tilgreindum fylgiskjölum.
Notendaráð samþykkir framlögð drög að reglum fyrir sitt leyti. Notendaráð lýsir yfir áhyggjum af ákvæði í b. lið 3. gr. reglna um stuðningsþjónustu þar sem fjallað er um aðkomu annarra heimilismanna að heimilishaldi. Tryggja þarf að álag á heimilismenn umsækjenda sé ekki of mikið. Óskað er eftir að starfsfólk Velferðarsviðs skoði orðalagsbreytingar á þessu ákvæði.
- Minnisblað fyrir notendaráð- nýjar reglur um stuðnings og stoðþjónustu fyrir fullorðið fólk
- Fylgiskjal 1 - Drög að reglum um stuðningsþjónustu
- Fylgiskjal 2 - Drög að reglum um stoðþjónustu fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
- Fylgiskjal 3 - Frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
- Fylgiskjal 4 - Frumvarp til laga um breytingar á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga
- Fylgiskjal 5 - Reglur um stuðningsþjónustu við fatlað fólk
- Fylgiskjal 6 - Reglur um félagslega heimaþjónustu í Kópavogsbæ
Kristín Þyri Þorsteinsdóttir kynnir starf skrifstofustjóra þjónustu og sértækrar ráðgjafar.
Notendaráð þakkar fyrir góða kynningu og lýsir ánægju með nýtt skipulag velferðarsviðs sem virðast vera til bóta.
Jón Kristján Rögnvaldsson kynnir starf skrifstofustjóra starfsstöðva og þróunar.
Notendaráð þakkar fyrir góða kynningu og lýsir ánægju með nýtt skipulag velferðarsviðs sem virðast vera til bóta.
Skipulag notendaráðs um málefni fatlaðs fólks og tillaga að fundum fyrir árið 2024.
Notendaráð samþykkir framlagt skipulag.