Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 1. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ingveldur Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hákon Helgi Leifsson - aðalmaður
  • Ragnar Smárason - aðalmaður
  • Axel Þór Eysteinsson - aðalmaður
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalmaður
  • Björg Baldursdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðlaug Ósk Gísladóttir - Deildarstjóri þjónustudeild fatlaðra
  • Aðalsteinn Sigfússon - Sviðsstjóri velferðarsviðs

Ritari

  • Guðlaug Ósk Gísladóttir

Í upphafi fundar kynnti formaður erindibréf ráðsins og deildarstjóri kynnti þjónustu- og ráðgjafadeild fatlaðra.

Dagskrá fundar

01

Endurskoðun á reglum í ferðaþjónustu

Drög að reglum í ferðaþjónustu lögð fram til umsagnar

Notendaráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti en gerir eftirfarandi athugsemdir við orðalag í 1. og 2. mgr. 2. gr. reglna og 3. mgr. 5. gr. reglna:

Í 1. gr. gerði notendaráð athugasemdir við eftirfarandi orðalag

Ferðir til og frá vinnu, skóla og hæfingu ganga fyrir öðrum ferðum og skulu þær ferðir vera að hámarki 44 ferðir í mánuði. Ferðir til annarra erinda verða ekki fleiri en 24 í mánuði. Ferð er skilgreind í reglum þessum sem akstur milli tveggja staða en ekki akstur fram og til baka. Miðað er við að ferðir verði ekki fleiri en 68 í mánuði.

Lagt er til að í stað þess standi:

Fjöldi ferða fer eftir samkomulagi umsækjenda og þjónustudeildar fatlaðra.

Í 5. gr. reglna gerði notendaráð athugasemdir við eftirfarandi orðalag.

Mikilvægt er að farþegar séu tilbúnir til brottfarar í anddyri brottfararstaðar á tilsettum tíma. Ætlast er til þess að viðkomandi komist án aðstoðar út í bílinn en í undantekningartilvikum skal bílstjóri veita farþega þá aðstoð.

Lagt er til að í stað þess standi:

Mikilvægt er að farþegar séu tilbúnir til brottfarar í anddyri brottfararstaðar á tilsettum tíma. Sé ástæða til til aðstoðar bílstjóri farþega til og frá anddyri.

02

Beiðni um umsögn notendaráðs fatlaðs fólks

Umsókn NPA miðstöðvar um starfsleyfi lögð fram til umsagnar.

Notendaráð samþykkir umsókn NPA miðstöðvarinnar um starfsleyfi fyrir sitt leyti