Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Öldungaráð - 21. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 1. hæð, Völlur

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Jón Atli Kristjánsson - formaður
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Þór Baldvinsson - aðalmaður
  • Stefanía Björnsdóttir - aðalmaður
  • Huldís Mjöll Sveinsdóttir - aðalmaður
  • Margrét Halldórsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Amanda Karima Ólafsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Herdís Björnsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Amanda K. Ólafsdóttir

Dagskrá fundar

01

Þjónustukannanir velferðarsviðs

Kynning á niðurstöðum viðhorfskönnunar er varðar heimsendan mat hjá heimaþjónustu og félagsmiðstöðva eldri borgara.

Lagt fram til upplýsinga.

Öldungaráð felur starfsmönnum öldungaráðs að skoða leiðir til að gera þjónustu á heimsendum mat skilvirkari og aðgengilegri.

02

Kynning á skipulagi velferðarsviðs

Sviðsstjóri kynnir nýtt skipulag velferðarsviðs sem tók gildi 1. febrúar 2023.

Lagt fram til upplýsinga. Öldungaráð þakkar Sigrúnu Þórarinsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs fyrir góða kynningu.

03

Samningur um heilsueflandi lausnir

Samtal um samning um heilsueflandi lausnir.

Formaður öldungaráðs gerði grein fyrir þróun verkefnis í tengslum við samning um heilsueflandi lausnir. Öldungaráð tekur undir mikilvægi þess að skoða fjölbreyttar leiðir til heilsueflingar.

04

Hugmyndir að verkefnum öldungaráðs.

Umræða um hugmyndir að verkefnum ráðsins í samvinnu við aðra t.d. FEBK.

Starfsmönnum öldungaráðs er falið að taka saman þær hugmyndir að verkefnum sem fulltrúar öldungaráðs leggja til. Sömuleiðis verður skýrsla send á nefndarmenn sem varpar mynd á málaflokkinn til upplýsinga.

05

Atvinnumiðlun eldra fólks.

Lagt fram til upplýsinga.

06

Réttindamál eldra fólks í heilbrigðiskerfinu.

Umræða um réttindamál eldra fólks í heilbrigðiskerfinu.

Máli frestað til næsta fundar öldungaráðs.

07

Aukin samvinna öldungaráða í Kraganum.

Umræða um að auka samvinnu við önnur öldungaráð í Kraganum.

Máli frestað til næsta fundar öldungaráðs.