Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Öldungaráð - 30. fundur

í Vallakór 4

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ragnar Guðmundsson - formaður
  • Björg Baldursdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Huldís Mjöll Sveinsdóttir - aðalmaður
  • Geir Þórðarson - aðalmaður
  • Stefanía Björnsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Kristján Rögnvaldsson - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Jón Kristján Rögnvaldsson

Dagskrá fundar

01

Erindisbréf öldungaráðs

Lögð fram drög að nýju erindisbréfi öldungaráðs.

Öldungaráð bendir á mikilvægi þess að í ráðinu sé að minnsta kosti einn bæjarfulltrúi til að tryggja að málum sé fylgt eftir innan stjórnkerfisins. Einnig er lagt til að fundarboðun miðist við að minnsta kosti þriggja sólarhringa fyrirvara.

02

Afsláttur af fasteignagjöldum lífeyrisþega

Kynning á fyrirkomulagi afsláttar fasteignagjalda.

Öldungaráð þakkar Ingólfi Arnarsyni fyrir góða kynningu á fyrirkomulagi afsláttar fasteignagjalda hjá Kópavogi.

Öldungaráð óskar eftir að fram fari endurskoðun á tekjumörkum vegna afsláttar.

Fyrir hönd FEBK óskar Geir Þórðarson auk þess eftir því að fá upplýsingar um fjölda einstaklinga og hjóna sem fengið hafa afslátt af fasteignagjöldum á árinu 2026 í hverjum afsláttarflokki. Einnig er óskað eftir upplýsingum um heildarupphæð afslátta í hverjum afsláttarflokki.

03

Virkniþing í þágu eldra fólks

Lagt fram til kynningar minnisblað um Virkniþing Kópavogsbæjar í þágu eldra fólks sem haldið var 25.2.2026.

Öldungaráð lýsir ánægju með nýafstaðið virkniþing og hvetur til þess að um árlegan viðburð verði að ræða.

04

Tölulegar upplýsingar velferðarsviðs

Lagðar fram til kynningar tölulegar upplýsingar um starfsemi velferðarsviðs september til desember 2025.

Lagðar fram til kynningar tölulegar upplýsingar um starfsemi velferðarsviðs september til desember 2025.

05

Könnun FEBK 2026

Geir Þórðarson formaður FEBK gerir grein fyrir niðurstöðum könnunar félagsins.

Öldungaráð þakkar Geir Þórðarsyni fyrir góða kynningu og hvetur starfsfólk velferðarsviðs til þess að rýna niðurstöðurnar og nýta.