Öldungaráð - 22. fundur
í Félagsmiðstöðinni Boðinn, Boðaþingi 9
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Jón Atli Kristjánsson - formaður
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
- Baldur Þór Baldvinsson - aðalmaður
- Stefanía Björnsdóttir - aðalmaður
- Huldís Mjöll Sveinsdóttir - aðalmaður
- Margrét Halldórsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Amanda Karima Ólafsdóttir - starfsmaður nefndar
- Herdís Björnsdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Amanda K. Ólafsdóttir
Dagskrá fundar
Umræða um réttindamál eldra fólks í heilbrigðiskerfinu.
Öldungaráð felur fulltrúa heilsugæslunnar í öldungaráði að eiga samtal við heilsugæsluna í Kópavogi um að auka og koma á betra aðgengi að upplýsingum um réttindamál og aðra þjónustu í þágu eldra fólks í Kópavogi. Mætti skoða að formgera samstarf á milli Velferðarsviðs Kópavogsbæjar og heilsugæslunnar.
Umræða um að auka samvinnu við önnur öldungaráð í Kraganum.
Lagt til að formaður öldungaráðs boði formenn öldungaráða í Kraganum á samstarfsfund til að ræða samstarfsmöguleika.
Óskað eftir áframhaldandi samtali varðandi fyrirspurn Félags eldri borgara í Kópavogi um helgaropnun í félagsmiðstöðvum eldri borgara í Kópavogi.
Lagt er til að stofnaður verði vinnuhópur með fulltrúum Félags eldri borgara í Kópavogi, fulltrúa félagsmiðstöðva og velferðarsviðs til að ræða útfærslur að helgaropnum í félagsmiðstöðvum eldri borgara. Skipulag miðast við fjárhagsramma sem er heimild fyrir í dag, jafnframt verði þetta skoðað við gerð næstu fjárhagsáætlunar. Starfsmenn öldungaráðs munu boða til fundar.