Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Öldungaráð - 24. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Jón Atli Kristjánsson - formaður
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Þór Baldvinsson - aðalmaður
  • Stefanía Björnsdóttir - aðalmaður
  • Huldís Mjöll Sveinsdóttir - aðalmaður
  • Margrét Halldórsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kristín Þyri Þorsteinsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Jón Kristján Rögnvaldsson - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Kristín Þyrí Þorsteinsdóttir

Dagskrá fundar

01

Reglur Kópavogsbæjar um stuðnings- og stoðþjónustu

02

Fundaröð öldungaráðs

Lögð fram til kynningar og afgreiðslu tillaga að fundaröð öldungaráðs 2024.

Tillaga að fundarröð öldungaráðs er samþykkt með þeim fyrirvara að maífundur ráðsins verði þriðjudaginn 7. maí.

03

Starfsemi öldungaráðs

Formaður öldungaráðs óskar eftir umræðu um hvernig unnt sé að tryggja aö öll mál sem eiga erindi við öldungaráð berist ráðinu til umfjöllunar skv. lögum.

Öldungaráð skorar á bæjaryfirvöld og stjórnsýslu Kópavogsbæjar að tryggja að öll mál sem varða þjónustu við eldra fólk, framkvæmd hennar og þróun, komi til umsagnar öldungaráðs.

Formaður lagði fram gögn til kynningar á fundinum með hugmyndum sem snerta starfsemi öldungaráðs.

04

Opnun félagsmiðstöðva aldraðra

Lögð fram til kynningar og umræðu áætlun um opnun félagsmiðstöðva eldri borgara í Kópavogi.

Lagt fram til kynningar.

Lagt er til að öldungaráði verði falið að halda áfram vinnu starfshóps um helgaropnun félagsmiðstöðva eldri borgara til framtíðar, sem skipaður var á fundi ráðsins 16. nóvember sl.

05

Aukin samvinna öldungaráða í Kraganum.

Lögð fram til kynningar og umræðu tillaga formanns öldungaráðs um sameiginlegan fund með öldungaráðum í Kraganum á árinu 2024. Umræðuefni þess fundar yrði samvinna í einstökum málaflokkum eldra fólks og mögulega sveitarfélaganna.

Formaður mun leitast eftir samstarfi við formenn annarra öldungaráða í Kraganum.

06

Heilræði öldungaráðs

Lögð fram til kynningar og umræðu tillaga formanns öldungaráðs að 12 heilræðum öldungaráðs Kópavogsbæjar.

Kynnt ráðinu

Öldungaráð þakkar formanni fyrir framtakið við gerð heilræðanna 12 og samþykkir að koma þeim á framfæri.