Skipulags- og umhverfisráð - 10. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hjördís Ýr Johnson - formaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalfulltrúi
- Kristinn Dagur Gissurarson - varaformaður
- Gunnar Sær Ragnarsson - aðalfulltrúi
- Helga Jónsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllHelga Jónsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Leó Snær Pétursson - aðalfulltrúi
- Hákon Gunnarsson - aðalmaðurBoðaði forföllHákon Gunnarsson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Indriði Ingi Stefánsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Ásthildur Helgadóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
- Karlotta Helgadóttir - fulltrúi skipulagsdeildar
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
Ritari
- Karlotta Helgadóttir
Dagskrá fundar
2505016F - Skipulags- og umhverfisráð - 9. fundur frá 02.06.2025
2208454 - Kársnes þróunarsvæði. Rammahluti aðalskipulags.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
2505604 - Kársnesbraut 108. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
24091148 - Breiðahvarf 2. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
2505016F - Skipulags- og umhverfisráð - 9. fundur frá 02.06.2025
2208454 - Kársnes þróunarsvæði. Rammahluti aðalskipulags.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
2504777 - Þjónustumiðstöð og hesthúsasvæði. Breyting á aðal- og deiliskipulagi Kjóavalla. Upphaf skipulagsvinnu.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs og áhættu og fjárstýringarstjóra.
2505604 - Kársnesbraut 108. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
24091148 - Breiðahvarf 2. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Lögð fram tillaga umhverfissviðs að verklagi fyrir íbúðasamráð í skipulagsmálum, dags. 3. júní 2025.
Sigrún María Kristinsdóttir verkefnastjóri íbúatengsla gerði grein fyrir verkefninu.
Lagt fram og kynnt.
Lagðar fram tilnefningar til götu ársins í Kópavogi árið 2025.
Karen Jónasdóttir verkefnastjóri umhverfismála gerði grein fyrir erindinu.
Tillaga að götu ársins í Kópavogi 2025 samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lögð fram skipulagslýsing dags. 13. júní 2025, sbr. 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna breytingar á Aðalskipulagi Kópavogs 2019 - 2040, breytingar á deiliskipulagi Vatnsendahlíðar Þing, samþykkt. dags. 13. janúar 2009 m.s.br., fyrir nýtt deiliskipulag Vatnsvíkur og breytingar á deiliskipulagi Kjóavalla, samþykkt dags. 8. júlí 2008 m.s.br. Skipulagslýsing er unnin af Kópavogsbæ. Skipulagslýsing fjallar um áform um að breyta skipulagi til að skipuleggja samfellda og vistvæna íbúðabyggð í Vatnsendahlíð og Vatnsvík, í góðum tengslum við núverandi byggð og innviði. Einnig er fjallað um áform um að lagt verði mát á þörf og fyrirkomulag uppbyggingar þjónustumiðstöðvar og hún eftir atvikum skipulögð við Kjóavelli. Einnig lögð fram samráðsáæltun sem er viðauki skipulagslýsingar dags. 10. júní 2025.
Samþykkt með vísan til 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð skipulagslýsing dags. 13. júní 2025 verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lagt fram erindi Landssamtaka hjólreiðamanna dags. 22. apríl 2025 sem var vísað til skipulags- og umhverfisráðs frá bæjarráði. Einnig er lögð fram greinargerð umhverfissviðs til bæjarráðs um uppfærslu hjólreiðaáætlunar, dags. 2. júní 2025.
Lagt fram. Umræður. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarráð að stofnaður verði starfshópur um nýja hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar.
- Erindi Landssamtaka hjólreiðamanna um Hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar, dags. 22. apríl 2025
- Greinagerð varðandi uppfærslu á hjólreiðaáætlun Kópavogs_undirskr.
- FW: Erindi um hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar frá Landssamtökum hjólreiðamanna
- Bæjarráð - 3218 _ 25042730 - Erindi varðandi Hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar