Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skipulagsráð - 6. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
  • Andrés Pétursson - aðalmaður
  • Guðmundur Gísli Geirdal - varaformaður
  • Sigríður Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Ása Richardsdóttir - aðalmaður
  • Kristinn Dagur Gissurarson - aðalmaður
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri

Starfsmenn

  • Birgir Hlynur Sigurðsson
  • Berglind Ósk Kjartansdóttir
  • Salvör Þórisdóttir

Ritari

  • Berglind Ósk Kjartansdóttir

Dagskrá fundar

Almenn erindi

01

Erindisbréf. Stefnumótun, aðgerðaráætlun.

Með tilvísan í erindisbréf skipulagsráðs skal ráðið í samráði við aðrar nefndir umhverfissviðs, móta heildarstefnu í skipulagsmálum og umhverfis- og samgöngumálum. Í stefnu skal sett fram hugmyndafræði um framangreind málefni, framtíðarsýn, gildi og markmið.

Eftirfarandi lagt fram:

1.

Aðgerðaráætlun Aðalskipulags Kópavogsbæjar 2012-2024.

Aðgerðaráætluninni er ætlað að skapa yfirsýn yfir markmið aðalskipulagsins og útfæra nánar leiðir að markmiðum þess.

2.

Samgöngustefna - Nýja línan. Hugmyndafræði.

Markmið samgöngustefnu er að framfylgja framtíðarsýn Kópavogsbæjar um þróun samgangna í sveitarfélaginu. Í samgöngustefnunni "Nýja línan" tengjast saman þættir eins og lýðheilsa, öryggi, byggðamynstur, náttúra og umhverfi.

3.

Umhverfisstefna.

Sjálfbær þróun er höfð að leiðarljósi í umhverfisstefnu Kópavogsbæjar varðandi alla ákvarðanatöku, framkvæmdir, rekstur, innkaup og aðra starfssemi á vegum bæjarins. Í stefnunni eru tengdir saman umhverfisþættir, félagsleg velferð og hagrænir þættir.

4.

Heildrænt skipulag.

Í skipulagi svæða og hönnun mannvirkja sé tekið tillit til lýðheilsu, fagurfræði, hagkvæmni, vistkerfis og þeim arfi sem felst í náttúru, landslagi, sögu og menningu.

Lagt fram og kynnt.