Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skipulagsráð - 77. fundur

í Borgum - safnaðarheimili Kópavogskirkju, Hábraut 1

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Helga Hauksdóttir - formaður
  • Jóhannes Júlíus Hafstein - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Kristinn Dagur Gissurarson - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgir Hlynur Sigurðsson - skipulagsstjóri
  • Smári Magnús Smárason - arkitekt
  • Guðrún Edda Finnbogadóttir - lögfræðingur
  • Bjarki Þórir Valberg - starfsmaður umhverfissviðs
  • Bergljót Sigríður Einarsdóttir - verkefnastjóri
  • Kristjana H Kristjánsdóttir - verkefnastjóri
  • Hildur Inga Rós Guðmundsdóttir - starfsmaður umhverfissviðs

Ritari

  • Birgir Hlynur Sigurðsson

Dagskrá fundar

01

Bæjarráð - 3003. fundur frá 20.05.2020

102004306 - Vogatunga 45. Breytt deiliskipulag.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

111911866 - Grundarhvarf 10. Breytt deiliskipulag.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

122003201 - Fífuhvammur 31. Kynning á byggingarleyfi.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

152005168 - Nýbýlavegur 2-12. Breytt deiliskipulag.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

182005446 - Bergsmári 5. Breytt aðkoma að bílastæði.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

02

Bæjarstjórn - 1216. fundur frá 26.05.2020

102004306 - Vogatunga 45. Breytt deiliskipulag.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

111911866 - Grundarhvarf 10. Breytt deiliskipulag.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

122003201 - Fífuhvammur 31. Kynning á byggingarleyfi.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

152005168 - Nýbýlavegur 2-12. Breytt deiliskipulag.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

182005446 - Bergsmári 5. Breytt aðkoma að bílastæði.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

03

Aðalskipulag Kópavogs 2019-2031 . Vinnslutillaga. Drög.

Lögð fram og kynnt drög að vinnslutillögu að nýju aðalskipulagi fyrir Kópavogsbæ, Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2031 . Í vinnslutillögunni sem er dags. 18. maí 2020 kemur m.a. fram stefna sveitarstjórnar um landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál innan lögsögu Kópavogs til næstu 12 ára. Þá lögð fram og kynnt umferðarspá VSÓ ráðgjöf sem unnin er í tengslum við endurskoðun aðalskipulagsins, greinargerð dags. í apríl 2020. Í umferðarspánni eru settir fram útreikningar fyrir ástand umferðar árið 2019, umferðarspá fyrir skipulagstímabilið þ.e. til ársins 2030 og síðan fyrir 2030 plús þar sem rýnt er lengra inn í framtíðina. Ennfremur lagt fram og kynnt umhverfismat aðalskipulagsins unnið af verkfræðistofunni Mannviti, umhverfisskýrsla dags. maí 2020. Matið er unnið í samræmi við lög nr. 105 frá 2006 en markmið laganna er að stuðla að sjálbærri þróun og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum og jafnframt stuðla að því að við áætlanagerð sé tekið tillit til umhverfissjónarmiða.

Gestir:

Svanhildur Jónsdóttir og Grétar Mar Hreggviðsson, samgönguverkfræðingar VSÓ-ráðgjöf og Rúnar Dýrmundur Bjarnason, umhverfisfræðingur og fagstjóri umhverfismála hjá Mannviti.

Lagt fram og kynnt.

04

Borgarlínan. Kynning.

Kynning á stöðu vinnu við fyrstu lotu Borgarlínu frá Ártúni í Reykjavík að Hamraborg í Kópavogi. Gerð verður m.a. grein fyrir mögulegri útfærslun á legu Borgarlínu á Bakkabraut frá brúarenda fyrirhugaðrar Fossvogsbrúar eftir Borgarholtsbraut að Hamraborg.

Gestir:

Hrafkell Á. Proppé, verkefnastjóri Borgarlínuteymis

Hildur Inga Rós Raffnsöe, arkitekt í hönnunarteymi Borgarínu.

Hallbjörn R. Hallbjörnsson, samgönguverkfræðingur í hönnunarteymi Borgarlínu.

Lagt fram og kynnt.

05

Samgöngustefna Kópavogsbæjar. Nýja línan.

Lögð fram og kynnt tillaga að samgöngustefnu Kópavogs - Nýja línan þar sem m.a. er fjallað um almenningssamgöngur, göngu- og hjólreiðar, bílaumferð og tækninýjungar sem nýtast fyrir bættar samgöngur. Samgöngustefnunni fylgir aðgerðaráætlun sem tengd hefur verið við heimsmarkmið og yfirmarkmið bæjarstjórnar sem samþykkt voru 11. september 2018.

Lagt fram og kynnt.