Skipulagsráð - 60. fundur
á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Helga Hauksdóttir - formaður
- Jóhannes Júlíus Hafstein - aðalmaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Kristinn Dagur Gissurarson - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
- Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Birgir Hlynur Sigurðsson - skipulagsstjóri
- Berglind Ósk Kjartansdóttir - starfsmaður umhverfissviðs
- Smári Magnús Smárason - arkitekt
- Steingrímur Hauksson - sviðsstjóri skipulags- umhverfissviðs
- Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
- Guðrún Edda Finnbogadóttir - lögfræðingur
- Bjarki Þórir Valberg - starfsmaður umhverfissviðs
- Bergljót Sigríður Einarsdóttir - verkefnastjóri
- Hildur Inga Rós Guðmundsdóttir - starfsmaður umhverfissviðs
Ritari
- Berglind Ósk Kjartansdóttir
Dagskrá fundar
1907234 - Vesturvör 50. Kársneshöfn. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
1908477 - Vesturvör 9. Kynning á byggingarleyfi.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
1904921 - Álfhólsvegur 37. Kynning á byggingarleyfi.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
1902260 - Langabrekka 5. Kynning á byggingarleyfi.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
1909365 - Akrakór 12. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Hrafnkell Á. Proppé, svæðisskipulagstjóri gerir grein fyrir verkefninu og stöðu mála.
Staða mála kynnt.
Strætó bs. hefur í samvinnu við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu unnið vinnslutillögu að breyttu leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Ragnheiður Einarsdóttir, samgöngusérfræðingur Strætó bs. gerir grein fyrir tillögunni.
Staða mála kynnt.
Lögð fram og kynnt drög að samgöngustefnu Kópavogs - Nýja línan þar sem m.a. er fjallað um almenningssamgöngur, göngu- og hjólreiðar, bílaumferð og tækninýjungar sem nýtast fyrir bættar samgöngur. Samgöngustefnunni fylgir aðgerðaráætlun sem tengd hefur verið við heimsmarkmið og yfirmarkmið bæjarstjórnar sem samþykkt voru 11. september 2018.
Staða mála kynnt.
Greint frá stöðu mála.
Gestir fundarins verða Pálmar Kristmundsson, arkitekt Pkmd, Gísli Steinar Gíslason og Jón Helgi Erlendsson, Stólpum ehf. og Gylfi Gíslason, Jáverk ehf.
Staða mála kynnt.
Farið yfir stöðu deiliskipulags við Dalveg 2-32 m.a. þróun byggðar, breytingar á skipulagi, umferð og tengingar Reykjanesbrautar við Dalveginn.
Staða mála kynnt.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi lóðarhafa Desjakórs 2 dags. 14. ágúst 2019 þar sem óskað er eftir stækkun lóðar til austurs og suðurs og reisa skjólgirðingu. Á fundi skipulagsráðs 7. október var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Desjakórs 1 og Dofrakórs 1. Lóðarhafi Desjakórs 2 skilaði inn undirrituðu samþykki lóðarhafa Desjakórs 1 og Dofrakórs 1 og því er kynningartími styttur. Uppdráttur í mkv. 1:200 og 1:2000 dags. 3. september 2019.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lagt fram erindi Reykjavíkurborgar þar sem kynnt eru drög að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lög um umhverfismat áætlana, nr. 105/2006. Áformuð breyting felur í sér færslu Korpulínu milli Geitháls og tengivirkis við Korpu, við Vesturlandsveg. Jafnhliða færslu verður háspennustrengurinn færður í jörð. Breytingin mun einnig ná til lítilsháttar tilfærslu á Rauðavatnslínu. Drögin eru sett fram í greinargerð dags. í september 2019.
Lagt fram og kynnt.