Skólanefnd - 40. fundur
í íþróttahúsinu Digranesi hjá Skólahljómsveit Kópavogs
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Rannveig H Ásgeirsdóttir - formaður
- Helgi Magnússon - aðalfulltrúi
- Alexander Arnarson - aðalfulltrúi
- Hreggviður Norðdahl - aðalfulltrúi
- Erla Karlsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Þór Heiðar Ásgeirsson - aðalfulltrúi
- Sigurður Haukur Gíslason - áheyrnarfulltrúi
- Guðrún Soffía Jónasdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Ragnheiður Hermannsdóttir
Skólanefnd þakkar fyrir frábært tóndæmi og greinargóða kynningu stjórnanda Skólahljómsveitar Kópavogs, Össurar Geirssonar.
Dagskrá fundar
Lagt fram til umræðu og umsagnar.
Skólanefnd þakkar nákvæma og góða vinnu grunnskóladeildar menntasviðs og samþykkir drög að mati og eftirliti sveitarstjórnar með skólastarfi með framkomnum athugasemdum.
Skólanefnd þakkar erindi kennara og tekur undir athugasemdir við núgildandi reglu um tölvur í skólum. Sama erindi hefur áður verið rætt í skólanefnd. Undirbúningur hefur verið í gangi um nokkurt skeið. Í ljósi örrar þróunar á sviði upplýsingatækni og aðsendra erinda frá skólasamfélaginu er nauðsynlegt að endurskoða núgildandi reglur um tölvubúnað í grunnskólum Kópavogs. Skólanefnd mun skipa starfshóp sem skilar áliti á vormánuðum 2012 um þróun upplýsingatækni í grunnskólum.
Erindi lagt fram.
Skólnefnd samþykkir rannsókn í grunnskólum Kópavogs.
Vinna við stefnu skólanefndar í málefnum grunnskólanna. Skipa þarf starfshóp til að vinna nýja framkvæmdaráætlun.
<SPAN style="FONT-FAMILY: "Times New Roman","serif"; FONT-SIZE: 11.5pt; mso-fareast-font-family: "Times New Roman"; mso-ansi-language: IS; mso-fareast-language: EN-US; mso-bidi-language: AR-SA"><SPAN style="FONT-FAMILY: "Times New Roman","serif"; FONT-SIZE: 11.5pt; mso-fareast-font-family: "Times New Roman"; mso-ansi-language: IS; mso-fareast-language: EN-US; mso-bidi-language: AR-SA; mso-bidi-font-weight: bold">Skipaður var nýr fulltrúi í starfshópinn frá meirihluta. Fulltrúi minnihluta verður skipaður síðar að þeirra ósk. Skólanefnd er sammála um að fyrri fulltrúar sitji áfram en þeir eru<SPAN style="mso-spacerun: yes"> </SPAN>fulltrúi skólastjóra, fulltrúi foreldra og deildarstjóri grunnskóladeildar sem stýrir hópnum og boðar fundi.</SPAN><STRONG>.</STRONG></SPAN>
Helgi Magnússon ítrekar beiðni skólanefndar um upplýsingar um stöðu forfalla og forfallakennslu í skólum bæjarins.
Þór Ásgeirsson óskar skýringar á því hvers vegna fundarboð á síðasta fund barst honum ekki.