Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skólanefnd - 22. fundur

í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal

Mætt til fundar

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Dagskrá fundar

Almenn erindi

01

Könnun á ferðavenjum sex ára barna

Samstarfsverkefni Skipulags- og umhverfissviðs, Fræðslusviðs og Framkvæmda- og tæknisviðs. Könnunin var gerð á haustmánuðum 2010.

<DIV&gt;<DIV&gt;Könnun lögð fram til kynningar.</DIV&gt;</DIV&gt;

Almenn erindi

02

Styrkumsókn vegna BETT 2011

Umsókn um ferðastyrk frá bókasafns- og upplýsingafræðingi við grunnskóla Kópavogs á alþjóðlega sýningu um kennslu- og upplýsingatækni í skólastarfi.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skólanefnd veitir umsækjanda 35.000 kr. styrk.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

Almenn erindi

03

Beiðni um endurskoðun reglna um fjölda tölva í grunnskólum Kópavogs

Skólanefnd vísaði erindi kennara um fjölda tölva í grunnskólum til Atvinnu- og upplýsinganefndar og sendi frá sér eftirfarandi bókun: Skólanefnd mun taka að sér að skoða fjölda tölva.$line$Skólanefnd biður atvinnu- og upplýsinganefnd að leita leiða til að fjölga tölvum í grunnskólum Kópavogs.$line$$line$$line$Atvinnu- og upplýsinganefnd bókaði eftirfarandi um málið: Skólanefnd óskar liðsinnis Atvinnu- og upplýsinganefndar um að fjölga tölvum í grunnskólum þannig að 3 nemendur verði um hverja tölvu í stað 5 nú. Nefndin treystir sér ekki til að taka undir erindi skólanefndar.$line$$line$Fram kemur í fundargerð Atvinnu- og upplýsinganefndar, frá 18. nóvember 2010, þar sem fjallað er um fjárhagsáætlun, að nefndin er að skoða hvort fækka megi enn frekar tölvum í skólum og spara hugbúnaðarkerfi sem notuð eru þar.$line$$line$Áheyrnarfulltrúar kennara spyrja því skólanefnd hver sé aðkoma Atvinnu- og upplýsinganefndar að tölvumálum í grunnskólum.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skólanefnd ítrekar bókun sína, frá 11.nóvember 2010, þar sem hún biður atvinnu- og upplýsinganefndar að leita leiða til að fjölga tölvum í grunnskólum.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Skólanefnd felur grunnskóladeild að svara erindi kennara.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Með vísum í fundargerð atvinnu- og upplýsinganefndar, frá 18. nóvember 2010, bendir skólanefnd á að tölvur og hugbúnaður sem notaður er í skólum er hluti grunnbúnaðar sem nýtt er til kennslu. Það er&nbsp;á verksviði skólanefndar að fjalla um hvaða búnaður sé nauðsynlegur, enda sé með honum verið að uppfylla lög og reglugerðir í skólastarfi.&nbsp;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

Almenn erindi

04

Ályktun Barnaheilla 2010

Barnaheill - Save the Children á Íslandi beina því til ríkisstjórnar og sveitarfélaga að þau standi vörð um réttindi barna og skerði umfram allt ekki þjónustu við þau og fjölskyldur þeirra á sviði menntamála, heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu.$line$$line$Lagt fram til kynningar.

<DIV&gt;<DIV&gt;Ályktun lögð fram til kynningar.</DIV&gt;</DIV&gt;

Almenn erindi

05

Umhverfisstefna Kópavogs

Eftirfarandi var bókað í bæjarráði 9/12: Bæjarráð samþykkir drög að umhverfisstefnu fyrir sitt leyti en óskar umsagnar nefnda og ráða bæjarins áður en stefnan fer til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$$line$

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skólanefnd fagnar nýrri umhverfisstefnu. Hún mun hafa&nbsp;stefnuna að leiðarljósi við endurskoðun skólastefnu grunnskóla Kópavogs.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

Almenn erindi

06

Loftnet á grunnskóla

Fyrirspurn frá föður barns í Kársnessskóla varðandi loftnet á þaki skólans var lagt fyrir skólanefnd 11. nóvember 2010. $line$Málinu var vísað til bæjarritara og hann beðinn að skoða dreifingu loftneta á skólabyggingum og greiðslur vegna þeirra.$line$$line$Svar bæjarritara verður lagt fram.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skólnefnd beinir því til bæjarráðs að samningar vegna dreifikerfa farsíma séu endurskoðaðir sem og loftnet á stofnunum bæjarins og taki tillit til heilsuverndarsjónarmiða, ekki síst barna, í ákvörðun sinni. Slíkt væri til samræmis við markmið umhverfisstefnu Kópavogs.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;