Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skólanefnd - 56. fundur

í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Bragi Þór Thoroddsen - aðalfulltrúi
  • Helgi Magnússon - aðalfulltrúi
  • Ragnheiður S Dagsdóttir - aðalfulltrúi
  • Alexander Arnarson - varafulltrúi
  • Þór Heiðar Ásgeirsson - aðalfulltrúi
  • Erla Karlsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sigurður Haukur Gíslason - áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur O Ásmundsson - áheyrnarfulltrúi
  • Marta Kristín Sigurjónsdóttir - foreldrafulltrúi
  • Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Dagskrá fundar

01

Mat og eftirlit sveitastjórna með skólastarfi 2013

Farið yfir mati og eftirlit Kópavogsbæjar með skólastarfi 2013 og fyrstu niðurstöður kynntar.

Málið rætt og því frestað til næsta fundar.

02

Ytra mat á grunnskólum - þróunarverkefni. Álfhólsskóli valinn

Lagt fram til kynningar.

Málið lagt fram.

03

Viðurkenningar Skólanefndar Kópavogs

Tilnefningar kynntar.

Skólanefnd skipar tvo fulltrúa frá meirihluta og einn fulltrúa frá minnihluta í vinnuhóp til að velja úr tilnefningum til viðurkenninga. Nefndin óskar jafnframt eftir að stjórn Samkóps tilnefni fulltrúa sinn í vinnuhópinn.

04

Eineltisáætlanir í grunnskólum

Erla Karlsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:"Undirrituð leggur til að skólanefnd taki til umræðu möguleika þess að markvisst og reglulegt, eftirlit verði með virkni eineltisáætlana hjá grunnskólum Kópavogs."

05

Úthlutun fjármagns til grunnskóla

Skólanefnd óskar eftir upplýsingum um fjármál og úthlutun fjármagns til skóla.