Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skólanefnd - 33. fundur

í Hörðuvallaskóla

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Rannveig H Ásgeirsdóttir - formaður
  • Jens Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Margrét Björnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Áshildur Bragadóttir - aðalfulltrúi
  • Alexander Arnarson - vara áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Haukur Gíslason - kennarafulltrúi
  • Erlendur H. Geirdal - foreldrafulltrúi
  • Guðrún Soffía Jónasdóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Bragi Þór Thoroddsen - varafulltrúi

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Skólanefnd þakkar góðar móttökur í Hörðuvallaskóla og skólastjóra áhugaverða kynningu á skólastarfinu.

Dagskrá fundar

Almenn erindi

01

Skóladagatal Kópavogsskóla 2011-2012

Erindi frá Kópavogsskóla um breytingar á skóladagatali.

Skólanefnd samþykkir breytingar.

Almenn erindi

02

Skóladagatal og starfsáætlun 2011-2012

Tillaga Bæjarráðs um að samræma starfsdaga í leik- og grunnskólum.

Skólanefnd mælir með því að starfsdagar skólaárið 2012 - 2013 verði samræmdir til reynslu og felur starfsmönnum menntasviðs að koma með tillögur að framkvæmd og mati á henni.

Almenn erindi

03

Hvatningarverðlaun skólanefndar 2011

Tillaga um breytt form á hvatningarverðlaunum.

Skólanefnd samþykkir breytt form.

Almenn erindi

04

Sameiginlegur starfsdagur kennara 30. september 2011

Kynning á degi og nefndarmönnum boðið að taka þátt.

Skólanefnd þakkar grunnskóladeild frábæra vinnu við skipulagningu sameiginlegs starfsdags grunnskóla og fagnar metnaðarfullu starfi í grunnskólum Kópavogs.

Almenn erindi

05

Vinnugögn skólanefndar 2011

Vinna við endurskoðun skólastefnu Kópavogs.

Skólanefnd vann áfram að endurskoðun skólastefnu.