Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skólanefnd - 61. fundur

í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Bragi Þór Thoroddsen - aðalfulltrúi
  • Helgi Magnússon - aðalfulltrúi
  • Ragnheiður S Dagsdóttir - aðalfulltrúi
  • Ásta Skæringsdóttir - aðalfulltrúi
  • Erla Karlsdóttir - aðalfulltrúi
  • Gísli Baldvinsson - aðalfulltrúi
  • Sigurður Haukur Gíslason - kennarafulltrúi
  • Marta Kristín Sigurjónsdóttir - foreldrafulltrúi
  • Friðþjófur Helgi Karlsson - fulltrúi skólastjóra
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs

Ritari

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir

Dagskrá fundar

01

Baugakór 38, Hörðuvallaskóli, húsnæðismál

Kynning á teikningum að nýrri viðbyggingu.

Jón Ingi Guðmundsson, frá umhverfissviði gerði grein fyrir teikningum að nýrri viðbyggingu við Hörðuvallaskóla. Skólanefnd þakkar góða kynningu á teikningunum.

02

Beiðni um að vinna rannsókn á lýðræðislegum starfsháttum stjórnenda og kennara í leik- og grunnskólum.

Skólanefnd samþykkir beiðnina með fyrirvara um samþykki skólastjóra. Nefndin óskar jafnframt eftir aðgengi að niðurstöðum rannsóknarinnar.

03

Beiðni um rannsókn á áhrifum erfiðrar hegðunar nemenda á nám og kennslu

Skólanefnd samþykkir beiðnina með fyrirvara um samþykki skólastjóra. Nefndin óskar jafnframt eftir aðgengi að niðurstöðum rannsóknarinnar.

04

Beiðni um leyfi fyrir gagnasöfnum í grunnskóla í Kópavogi vegna rannsóknar á áhugaverðum starfsháttum í málefnum nemenda af erlendum uppruna

Skólanefnd samþykkir beiðnina með fyrirvara um samþykki skólastjóra. Nefndin óskar jafnframt eftir aðgengi að niðurstöðum rannsóknarinnar.

Skólanefnd þakkar Sigurði Hauki Gíslasyni, fulltrúa kennara í skólanefnd, fyrir vel unnin störf í skólanefd síðastliðin 9 ár.