Umhverfis- og samgöngunefnd - 17. fundur
í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
- Helgi Jóhannesson - aðalmaður
- Steingrímur Hauksson
- Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
- Hreiðar Oddsson - aðalmaður
- Margrét Björnsdóttir - aðalfulltrúi
- Tryggvi Magnús Þórðarson - áheyrnarfulltrúi
Ritari
- Hólmfríður Þorsteinsdóttir
Dagskrá fundar
Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 5. mars 2012 voru lögð fram drög að greinargerð Aðalskipulags Kópavogs 2012 - 2024 og Staðardagskrár 21. Fulltrúar frá Landmótun og skipulags- og byggingardeild Kópavogs kynntu vinnu við endurskoðun aðalskipulags Kópavogs og Staðardagskrá 21.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd fól starfsmönnum umhverfissviðs að taka saman ábendingar nefndarmanna og koma þeim áfram til skipulagsnefndar.$line$Lagt fram á ný.
Textinn yfirfarinn og færðar inn athugasemdir og leiðréttingar í vinnuskjal.
Frá fulltrúum Samfylkingarinnar og Vinstri grænna: Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 23. janúar 2012 var lögð fram verkefnaáætlun í umhverfis- og samgöngumálum 2012 - 2014. Málinu var frestað. Við leggum fram þá áætlun á ný og óskum eftir að hún sé tekin til umfjöllunar.
Málið kynnt og verður tekið upp síðar.
Á fundi bæjarráðs 16. febrúar 2012 var samþykkt tillaga menningar- og þróunarráðs um stofnun starfshóps til að fjalla um skipulag, umhverfi og nýtingu Kópavogstúns og bygginga á svæðinu. Óskað er eftir fulltrúa frá umhverfis- og samgöngunefnd í starfshópinn og að starfsmaður umhverfissviðs verði ritari hópsins að höfðu samráði við sviðsstjóra.$line$Frestað.$line$Lagt fram á ný.
Umhverfis- og samgöngunefnd tilnefnir Margréti Björnsdóttur.
Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna spyrja um stefnu meirihlutans í umhverfis- og samgöngumálum. Málefnasamningur meirihlutans er mjög rýr hvað varðar málefnið. Þar eru einungis þrjú atriði hvað varðar umhverfis- og samgöngumál, þar af tvö atriði um tiltekt og umgengni og eitt um Arn