Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 51. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Jón Kristinn Snæhólm - aðalfulltrúi
  • Sigurður M Grétarsson - aðalfulltrúi
  • Birgir Hlynur Sigurðsson - skipulagsstjóri
  • Bjarki Þórir Valberg

Ritari

  • Bjarki Valberg

Hreiðar Oddsson boðaði forföll.
Varamaður Hreiðars Oddssonar, Sturla Gunnar Eðvarðsson boðaði einnig forföll.

Dagskrá fundar

01

Kosningar í umhverfis- og samgöngunefnd 2014

Kosning formanns og varaformanns umhverfis- og samgöngunefndar.

Tillögur að formanni og varaformanni umhverfis- og samgöngunefndar: $line$Samhljóða voru kjörinn formaður Hjördís Ýr Johnson og varaformaður Hreiðar Oddsson.

02

Umhverfisviðurkenningar 2014

Lagðar fram tillögur að tilnefningum til Umhverfisviðurkenninga 2014.

Lagðar fram tilnefningar umhverfisviðurkenninga 2014. Samþykkt.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að umhverfisviðurkenningar verði veittar 21.ágúst 2014.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd vísar tillögu að götu ársins til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Háalind - Umferðamál - Ósk um hraðahindrun

Lagt fram erindi Silju Huldar Árnadóttur varðandi ósk um hraðahindrun dags 5.6.2014.

Samkvæmt umferðaskipulagi Kópvogsbæjar 2012 er gert ráð fyrir upphækkun og gangbraut í götunni.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til gerðar næstu fjárhagsáætlunar.

04

Lindasmári 26, hávaðamengun

Lagt fram erindi Guðrúnar Guðlaugsdóttur varðandi Lindasmára dags. 11.6.2014.$line$

Umhverfis- og samgöngunefnd hafnar erindinu þar sem mældur umferðahávaði dags 21.6.2013 á svæðinu er undir viðmiðunarmörkum aðgerða hjá sveitarfélaginu.

05

Umferðamál - Perlukór - Ósk um hraðahindrun - Ólöglegar bifbreiðastöður

Lagt fram erindi Knúts Loga Lárussonar varðandi umferðamál við Perlukór dags. 16.6.2014.

Samkvæmt umferðaráætlun Kópavogsbæjar 2012 er gert ráð fyrir einni hraðahindrun í götunni þar sem nú er bráðabirgða hraðahindrun. Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfisfulltrúa að senda bréf í umrædda götu þar sem íbúar eru hvattir til að huga að hraðatakmörkum í götunni.$line$Ólöglegum bifreiðastöðum hefur verið vísað til lögreglu.

06

Smiðjuhverfi - Smiðjuvegur og Skemmuvegur - Skilti um að bifreiðarstöður séu bannaðar í götunum

Lagt fram minnisblað varðandi uppsetningu á skiltum varðandi bann á bifreiðastöðum í Smiðjuvegi og Skemmuvegi dags. 26.6.2014.

Umhverfis- og samgöngunefnd lítur jákvætt á erindið og vísar því til umhverfissviðs til nánari útfærslu og gerðar nánari fjárhagsáætlunar.

07

Umferðamál - Austurgerði

Lagt fram erindi Unnar Þóru Högnadóttur varðandi umferðamál í Austurgerði og Hraunbraut dags. 11.7.2014.

Samkvæmt umferðaskipulagi Kópavogsbæjar 2012 er gert ráð fyrir 30 km hliði í Austurgerði og hraðahindrun í Hraunbraut. Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að framkvæmda samantekt á þeim götum sem liggja að þjónustustofnunum miðbæjarins í samræmi við umferðaáætlun 2012.

Umhverfis- og samgöngunefnd óskar eftir að tekin verði saman listi um óskir um hraðahindranir 2014 fyrir gerð næstu fjárhagsáætlunar.