Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 103. fundur

á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Andri Steinn Hilmarsson - formaður
  • Sigurður Sigurbjörnsson - aðalmaður
  • Kristín Hermannsdóttir - aðalmaður
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Indriði Ingi Stefánsson - aðalmaður
  • Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi
  • Birkir Rútsson - deildarstjóri gatnadeildar

Starfsmenn

  • Bjarki Þórir Valberg - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Bjarki Valberg

Formaður leggur til við Umhverfis- og samgöngunefnd að nefndin samþykki erindi formanns varðandi Umhverfisstefnu Kópavogsbæjar og loftlags- og loftgæðastefnu Kópavogs undir liðnum almenn erindi á dagskrá fundarins.

Formaður leggur til við Umhverfis- og samgöngunefnd að nefndin samþykki erindi Indriða Stefánssonar fyrirspurn til nefndarinnar undir önnur mál á dagskrá fundarins.

Dagskrá fundar

01

Rykbinding á götum í Kópavogi

Fulltrúi umhverfisstofnunar kynnir rykbindingu á götum á höfuðborgarsvæðinu.

Lagt fram og kynnt. Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að vinna áfram að verkefninu og kynna fyrir nefndinni.

02

Gatnaviðhald - ástandsskoðun, heildarúttekt

Lögð fram skýrsla Eflu ehf. varðandi gatnaviðhald í Kópavogi 2018, ástandmat á slitlögum gatna í Kópavogi veturinn 2017-2018 dags. 19.04.2018

Umhverfis- og samgöngunefnd óskar eftir upplýsingum um hvaða götum hefur verið sinnt það sem af er ári og eins hvaða götum verið lokið við að sinna á þessu ári í gatnaviðhaldi. Eins er óskað eftir hvaða göngu- og hjólastígar hafa verið lagðir, endurnýjaðir eða endurbættir.

03

Aðgangsstýrð reiðhjólastæði í Kópavogi

Lögð fram tillaga að tilraunaverkefni á aðgangsstýrðum reiðhjólastæðum í Kópavogi.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að sett verði upp 10 yfirbyggð og aðgangsstýrð reiðhjólastæði sem tilraunaverkefni við Hálsatorg í Hamraborg ásamt viðgerðarstandi.

Umhverfis- og samgöngunefnd vísar kostnaðarliðum erindisins til bæjarráðs og bæjarstjórnar og gerðar fjárhagsáætlunar.

Umhverfis- og samgöngunefnd vísar til vinnu við Samgöngustefnu Kópavogsbæjar sambærilegri uppbyggingu á Kársnesi, Smáranum og öðrum svæðum.

Erlendur H. Geirdal áheyrnarfulltrúi lýsir yfir ánægju með verkefnið og styður heildstæða uppbyggingu vistvænna samgangna.

04

Uppfæra Umhverfisstefnu Kópavogsbæjar í samræmi við heimsmarkmiðin og áhersluatriði stefnumótunar Kópavogsbæjar erindi frá Andra Stein Hilmarssyni

Lagt fram erindi Andra Steins Hilmarssonar dags. 15.10.2018 varðandi uppfærslu á Umhverfisstefnu í samræmi við heimsmarkmiðin og áhersluatriði stefnumótunar Kópavogsbæjar verði hafin. Loftlagsstefna- og loftgæðaáætlun Kópavogsbæjar verði hluti af Umhverfistefnu Kópavogsbæjar.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að hefja vinnu við uppfærslu á Umhverfisstefnu Kópavogsbæjar í samræmi við heimsmarkmiðin og felur umhverfissviði að koma með tillögu að útfærslu.

05

Málstofa - Áhrif loftlagsbreytinga á rekstur sveitarfélaga - Veðurstofa Íslands

Gert grein fyrir málstofu á vegum Veðurstofu Íslands varðandi loftlagsbreytingar á Íslandi og áhrif á rekstur sveitarfélaga sem haldið var 3.10.2018.

Lagt fram og kynnt.

06

Ljósa- og auglýsingaskilti - Verklag

Kynning verklagsreglum fyrir skilti í Kópavogi 2013 og áframhaldandi vinnu á verklagsreglum fyrir ljós- og auglýsingaskilti í Kópavogi 2018. Lögð fram skýrsla Lisku ehf, varðandi drög að stefnumótun fyrir skilti í Kópavogi dags. 5. október 2018.

Lagt fram og kynnt. Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að vinna áfram að verkefninu og kynna fyrir nefndinni.

07

Gámar í Kópavogi

Lögð fram tillaga að fyrirkomulagi stöðuleyfa í Kópavogi og gjaldskrá fyrir stöðuleyfa gáma í Kópavogi.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagða tillögu að tilraunaverkefni. Gefin skal 7 daga frestur til að sækja um stöðuleyfi þegar útgáfa stöðuleyfa hefst 1. janúar 2019. Ef ekki er sótt um stöðuleyfi innan 7 daga skal gefin út viðvörun að eftir 10 daga verði gámur fjarlægður á kostnað eigenda. Ofangreindir frestir koma í stað viðeigandi frests í ákvæði 3. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

08

Fyrirspurn til umfjöllunar í Umhverfis- og samgöngunefnd frá Indriða Stefánssyni

Lögð fram erindi til Umhverfis- og samgönguefndar frá Indriða Stefánssyni dags. 15.10.2018

Lagt fram og kynnt. Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að undirbúa erindi og kynna á næsta fundi nefndarinnar.