Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 154. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hannes Steindórsson - formaður
  • Guðjón Ingi Guðmundsson - aðalmaður
  • Gunnar Sær Ragnarsson - aðalmaður
  • Jane Victoria Appleton - aðalmaður
  • Leó Snær Pétursson - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Ásthildur Helgadóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - bæjarlögmaður

Ritari

  • Guðmundur G. Gunnarsson

Dagskrá fundar

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

01

Bæjarstjórn - 1259. fundur frá 14.06.2022

Kosningar í umhverfis- og samgöngunefnd 2022-2026.

Aðalmenn:

Gunnar Sær Ragnarsson

Guðjón Ingi Guðmundsson

Hannes Steindórsson

Indriði Ingi Stefánsson

Jane Victoria Appleton

Varamenn:

Kristín Hermannsdóttir

Hjördís Einarsdóttir

Andri Steinn Hilmarsson

Matthías Hjartarson

Tryggvi Felixson

Áheyrnarfulltrúar:

Kristín Sævarsdóttir

Leó Pétursson

Varaáheyrnarfulltrúar:

Björn Þór Rögnvaldsson

Andrés Pétursson.

Almenn erindi

02

Umhverfis- og samgöngunefnd. Kosning formanns og varaformanns.

Kjör formanns og varaformanns.

Hannes Steindórsson er kjörinn formaður með 4 atkvæðum.

Gunnar Sær Ragnarsson er kjörinn varaformaður með 4 atkvæðum.

Almenn erindi

03

Erindisbréf umhverfis- og samgöngunefndar

Erindisbréf umhverfis- og samgöngunefndar samþykkt af bæjarráði 12. janúar 2012, lagt fram og kynnt.


Lagt fram og kynnt.

Almenn erindi

04

Suðurlandsvegur í Kópavogi og Mosfellsbæ. Deiliskipulag.

Lögð fram tillaga verkfræðistofunar Eflu f.h. umhverfissviðs Kópavogsbæjar og Mosfellsbæjar að deliskipulagi Suðurlandsvegar í Kópavogi og Mosfellsbæ. Skipulagssvæðið er rúmir 67,3 ha að stærð, um 5,6 km að lengd og liggur frá Geithálsi vestan Hólmsár, í Mosfellsbæ, að tvíbreiðum hluta Suðurlandsvegar, austan Lögbergsbrekku. Í tillögunni er gert ráð fyrir að núverandi Suðurlandsvegur verði breikkaður til norðurs og verði samfelldur stofnvegur 2 2. Gert er ráð fyrir vegamótum við Geirland ásamt hliðarvegum/tengivegum í Lækjarbotnum, Gunnarshólma og Geirlandi. Markmið deiliskipulagsins er að auka þjónustustig samgangna á svæðinu og bæta umferðaröryggi. Uppdrættir dags. 30. júní 2022 í mkv 1:10000.

Ómar Ingþórsson landslagsarkitekt gerir grein fyrir erindinu.

Lagt fram og kynnt.


Gestir

  • Ómar Ingþórsson - mæting: 17:05
  • Gísli Gíslason - mæting: 17:05
  • Erna Bára Hreinsdóttir - mæting: 17:05
Almenn erindi

05

Umhverfisviðurkenningar 2022.

Lögð fram tillaga að útfærslu og verklagi vegna umhverfisviðurkenninga 2022. Einnig farið yfir tillögur að umhverfisviðurkenningum fyrir árið 2022 og götu ársins 2022.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir útfærslu og verklag vegna umhverfisviðurkenninga 2022. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einnig framlagðar tillögur að umhverfisviðurkenningum og götu ársins 2022.

Götu ársins er vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

06

Rafhleðsla ökutækja í Kópavogi.

Lagt fram erindi Hákons Gunnarssonar varabæjarfulltrúa dags. 26. júní 2022, þar sem óskað er eftir yfirferð á stefnu Kópavogsbæjar í rafhleðslumálum ökutækja fyrir almenning. Þá lagt fram minnisblað gatnadeildar dags. 1. júlí 2022.

Lagt fram. Vísað til umsagnar umhverfissviðs.

Fundarhlé kl. 18:24

Fundur hófst á ný kl. 18:29

Bókun Kristínar Sævarsdóttir: "Rafhleðslustöðvar fyrir almenning eru mikilvægar og löngu tímabærar í Kópavogi. Brýnt er að umhverfissvið hraði þessari vinnu eins og hægt er."