Umhverfis- og samgöngunefnd - 151. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Andri Steinn Hilmarsson - formaður
- Kristín Hermannsdóttir - aðalmaður
- Hreiðar Oddsson - aðalmaður
- Indriði Ingi Stefánsson - aðalmaður
- Jón Magnús Guðjónsson - aðalmaður
- Sigurður Sigurbjörnsson - aðalmaðurBoðaði forföllSigurður Sigurbjörnsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Birkir Rútsson - deildarstjóri gatnadeildar
- Ásthildur Helgadóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
Ritari
- Birkir Rútsson
Dagskrá fundar
Lögð fram drög að menningarstefnu Kópavogs sem lista- og menningarráð Kópavogs samþykkti á fundi sínum þann 6. apríl 2022 til umfjöllunar í ráð og nefndum bæjarins. Lísa Z. Valdimarsdóttir kynnir.
Kynning á fyrirhuguðum endurbótum á göngu- og hjólastíg um botn Kópavogs á milli sveitarfélagamarka Garðabæjar og Kópavogs og Kópavogstúns.
Umhverfis- og samgöngunefnd lítur jákvætt á framkvæmdina en bendir á að mikilvægt sé að umferð gangandi, hjólandi og akandi um botn Kópavogs sé sem minnst skert á framkvæmdatímanum t.d. með gerð auka akreinar á Hafnarfjarðarvegi.
Kynning um endurbætur á göngu- og hjólastíg um Kópavogsháls á milli Kópavogstúns og Borgarholtsbrautar
Kynning á stöðu hönnunar á endurbótum á göngu- og hjólastíg um Ásbraut
Indriði Stefánsson bókar, að kostir og gallar þess að taka umferðina í gegnum bílastæðahús við Hábraut 2 verði tekið til skoðunar.
Fyrirspurn nefndarfulltrúa Indriða Inga Stefánssonar um gæði snjómoksturs og vetrarþjónustu.
Lagt fram og kynnt. Umræður
Fyrirspurn nefndarfulltrúa Indriða Inga Stefánssonar um virkni Klapp appsins.
Umhverfis- og samgöngunefnd óskar eftir fulltrúa strætó bs. til að kynna virkni Klapp appsins á næsta fund nefndarinnar.