Umhverfis- og samgöngunefnd - 128. fundur
í Borgum - safnaðarheimili Kópavogskirkju, Hábraut 1
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Andri Steinn Hilmarsson - formaður
- Sigurður Sigurbjörnsson - aðalmaður
- Kristín Hermannsdóttir - aðalmaður
- Hreiðar Oddsson - aðalmaður
- Indriði Ingi Stefánsson - aðalmaður
- Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Bjarki Þórir Valberg - starfsmaður nefndar
- Birgir Hlynur Sigurðsson - skipulagsstjóri
Ritari
- Bjarki Valberg
Dagskrá fundar
Lögð fram og kynnt drög að vinnslutillögu að nýju aðalskipulagi fyrir Kópavogsbæ, Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2031 . Í vinnslutillögunni sem er dags. 18. maí 2020 kemur m.a. fram stefna sveitarstjórnar um landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál innan lögsögu Kópavogs til næstu 12 ára. Þá lögð fram og kynnt umferðarspá VSÓ ráðgjöf sem unnin er í tengslum við endurskoðun aðalskipulagsins, greinargerð dags. í apríl 2020. Í umferðarspánni eru settir fram útreikningar fyrir ástand umferðar árið 2019, umferðarspá fyrir skipulagstímabilið þ.e. til ársins 2030 og síðan fyrir 2030 þar sem rýnt er lengra inn í framtíðina. Ennfremur lagt fram og kynnt umhverfismat aðalskipulagsins unnið af verkfræðistofunni Mannviti, umhverfisskýrsla dags. maí 2020. Matið er unnið í samræmi við lög nr. 105 frá 2006 en markmið laganna er að stuðla að sjálbærri þróun og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum og jafnframt stuðla að því að við áætlanagerð sé tekið tillit til umhverfissjónarmiða.
Gestir fundarins eru:
Svanhildur Jónsdóttir og Grétar Mar Hreggviðsson, samgönguverkfræðingar VSÓ-ráðgjöf og Rúnar Dýrmundur Bjarnason, umhverfisfræðingur og fagstjóri umhverfismála hjá Mannviti.
Lagt fram og kynnt.
Kynning á stöðu vinnu við fyrstu lotu Borgarlínu frá Ártúni í Reykjavík að Hamraborg í Kópavogi. Gerð verður m.a. grein fyrir mögulegri útfærslun á legu Borgarlínu á Bakkabraut frá brúarenda fyrirhugaðrar Fossvogsbrúar eftir Borgarholtsbraut að Hamraborg.
Gestir fundarins:
Hrafkell Á. Proppé, verkefnastjóri Borgarlínuteymis
Hildur Inga Rós Raffnsöe, arkitekt í hönnunarteymi Borgarínu.
Lagt fram og kynnt.
Lögð fram og kynnt tillaga að samgöngustefnu Kópavogs - Nýja línan þar sem m.a. er fjallað um almenningssamgöngur, göngu- og hjólreiðar, bílaumferð og tækninýjungar sem nýtast fyrir bættar samgöngur. Samgöngustefnunni fylgir aðgerðaráætlun sem tengd hefur verið við heimsmarkmið og yfirmarkmið bæjarstjórnar sem samþykkt voru 11. september 2018.
Lagt fram og kynnt.
04
Kynning frá Hopp Mobility og ósk um tilraunaverkefni með upspetningu á rafskútuleigu í Kópavogi
Lagt fram erindi Hopp varðandi tilraunaverkefni í Kópavogi með uppsetningu á rafskútuleigu dags. 26.5.2020. Eyþór Máni Steinarsson, rekstrarstjóri Hopp gerir grein fyrir erindinu.
Umhverfis- og samgöngunefnd mælir með að farið verði í tilraunaverkefni í Kópavogi. Að gerður verði þjónustusamningur við Hopp mobility til 1. okt. 2020 um rekstur á rafskútuleigu í Kópavogi.
Lagt fram erindi Oss rafrenna varðandi innleiðingu á leigu á rafhlaupahjólum dags. 18.5.2020. Harpa Dögg Magnúsdóttir og Magnús Sigurðsson gera grein fyrir erindinu.
Frestað.