Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 114. fundur

á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Andri Steinn Hilmarsson - formaður
  • Sigurður Sigurbjörnsson - aðalmaður
  • Kristín Hermannsdóttir - aðalmaður
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Indriði Ingi Stefánsson - aðalmaður
  • Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Bjarki Þórir Valberg - starfsmaður nefndar
  • Birkir Rútsson - deildarstjóri gatnadeildar

Ritari

  • Bjarki Valberg

Dagskrá fundar

01

Framkvæmdir á útivistarsvæðum 2019

Frá Garðyrkjustjóra lögð fram tillaga að framkvæmdum á útivistarsvæðum í Kópavogi 2019.

Lagt fram og kynnt.

02

Hundagerði í Kópavogi

Frá formanni Umhverfis- og samgöngunefndar lögð fram tillaga að hundasvæði. Garðyrkjustjóri Kópavogsbæjar kynnir tillöguna.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu að hundasvæði og vísar því til umsagnar Skipulagsráðs.

03

Bílastæði í Hamraborg

Lagt fram erindi Markaðsstofu Kópavogs ses. varðandi bílastæði í Hamraborg dags. 2.4.2019.

Umhverfis- og samgöngunefnd tekur jákvætt í erindið og vísar því til umsagnar umhverfissviðs og bæjarlögmanns.

04

Frá fostöðumanni Sundlaugar Kópavogs - Bílastæðamál við Sundlaug Kópavogs

Lögð fram tillaga að varanlegri lausn á bílastæðavanda Sundlaugar Kópavogs.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu enda rúmist hún innan ramma fjárhagsáætlunar.

05

Loftgæði 2019.

Lögð fram skýrsla Efnagreiningar Nýsköpunarmiðstöðvar dags. mars 2019 varðandi Umhverfisvöktun Dalsmára, mælingar í lofti 2018.

Lagt fram og kynnt.

06

Plastlaus september 2019

Lagt fram erindi Heiðar Magný Herbertsdóttur formanns stjórnar fyrir Plastlaus September dags. 13.3.2019.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að taka þátt í verkefninu og vísar erindinu til afgreiðslu Umhverfissviðs.

07

Brennisteinsvetni í andrúmslofti

Lagt fram erindi frá Erlendi Geirdal varðandi brennisteinsvetni í andrúmslofti.

Vísað til umsagnar Umhverfissviðs.