Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 174. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Bergur Þorri Benjamínsson - formaður
  • Guðjón Ingi Guðmundsson - varaformaður
  • Svava Halldóra Friðgeirsdóttir - aðalmaður
  • Jane Victoria Appleton - aðalmaður
  • Indriði Ingi Stefánsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Indriði Ingi Stefánsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Leó Snær Pétursson - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Birkir Rútsson - deildarstjóri gatnadeildar
  • Karen Jónasdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Karen Jónasdóttir

Svava Halldóra Friðgeirsdóttir kemur á fund kl 16:41
Guðjón Ingi Guðmundsson kemur á fund kl 16:55

Dagskrá fundar

01

Húsasorpsrannsókn Sorpu 2023

Kynning á niðurstöðum árlegrar Húsasorpsrannsóknar Sorpu 2023. Gyða S. Björnsdóttir umhverfis- og gæðastjóri Sorpu og Gunnar Dofri Ólafsson samskipta- og þróunarstjóri Sorpu gera grein fyrir erindinu.

Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar fyrir kynninguna og fagnar þeim árangangri sem þegar hefur náðst. Með hvatningu um enn betri árangur.

02

Fyrirspurn nefndarfulltrúa vegna götusópunar.

Fyrirspurn formanns varðandi götusópun og sópun á gangstígum á haustin.

Fyrirspurn svarað og málið rætt.

03

Umhverfissvið, aðgerðaáætlun, stefnumörkun.

Kynning á framgangi aðgerða í aðgerðaráætlun fyrir umhverfissvið 2024. Þá er lögð fram stöðuskýrsla umhverfissviðs dags. 31 maí 2024 þar sem gert er grein fyrir aðgerðum og mælanlegum markmiðum þeim tengdum ásamt stöðu.

Skýrsla dags. 31. maí 2024.

Guðrún Edda Finnbogadóttir skrifstofustjóri umhverfissviðs gerir grein fyrir erindinu.

Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Guðrúnu Eddu fyrir kynninguna.

04

Fundarröð umhverfis- og samgöngunefndar

Uppfærð fundarröðun fyrir umhverfis- og samgöngunefnd fyrir árið 2024 lögð fyrir.

Samþykkt.

05

Fyrirspurn nefndarfulltrúa Indriða Inga Stefánssonar varðandi strætóskýli við Kringlumýrarbraut.

Fyrirspurn nefndarfulltrúa Indriða Inga Stefánssonar varðandi ný strætóskýli við Kringlumýrarbraut, neðst í Fossvogsdal.

Vísað frá. Bent á Strætó og Reykjavíkurborg þar sem stoppustöðin er á þeirra landi.

06

Fyrirspurn varaáheyrnarfulltrúa Andrésar Péturssonar um hámarkshraðamerkingar.

Fyrirspurn varaáheyrnarfulltrúa Andrésar Péturssonar um stöðu merkinga í Kópavogi þar sem hámarkshraði hefur verið lækkaður.

Umhverfis- og samgöngunefnd óskar eftir að starfsfólk sviðsins komi með upplýsingar um stöðu skiltamerkinga á næsta fundi á þeim götum sem hámarkshraði hefur verið lækkaður.

07

Ósk um umsögn eða athugasemd við drónaflugi til afhendingar í Kópavogi 2024

Ósk Netgengis ehf (Aha) um umsögn vegna drónaflug til afhendingar í Kópavogi.

Málinu frestað.