Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 155. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hannes Steindórsson - formaður
  • Guðjón Ingi Guðmundsson - aðalmaður
  • Gunnar Sær Ragnarsson - aðalmaður
  • Jane Victoria Appleton - aðalmaður
  • Indriði Ingi Stefánsson - aðalmaður
  • Leó Snær Pétursson - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Birkir Rútsson - deildarstjóri gatnadeildar
  • Ásthildur Helgadóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs

Ritari

  • Birkir Rútsson

Dagskrá fundar

01

Skógarlind, úttekt á umferð og tillögur að úrbótum

Kynning á umferðargreiningu VSÓ í Skógarlind. Davíð Guðbergsson hjá VSÓ gerir grein fyrir málinu

Lagt fram og kynnt.

Umhverfis- og samgöngunefnd Þakkar Davíð fyrir kynninguna og felur starfsfólki skipulagsdeildar að vinna áfram að málinu.

02

Kynning á starfsemi þjónustumiðstöðvar

Leifur Eiríksson forstöðumaður þjónustumiðstöðvar kynnir starfsemi þjónustumiðstöðvar Kópavogs.

Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Leifi fyrir kynninguna og vill benda á að nauðsynlegt er að huga framtíðaraðstöðumálum Þjónustumiðstöðvar.

03

Kynning á starfsemi bílastæðasjóðs Kópavogsbæjar

Leifur Eiríksson forstöðumaður þjónustumiðstöðvar kynnir starfsemi bílastæðasjóðs og þeim heimildum sem unnið er með.

Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Leifi fyrir kynninguna og leggur til að bæjarstjórn samþykki að bílastæðasjóður geti nýtt heimildir 29. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

04

Aðgengismál um göngustíg við Hrauntungu

Farið yfir málsmeðferð og aðstæður er varðar ósk um breytingu á aðgengi um göngustíg á milli Hrauntungu og Digranesvegar.

Kristín Sævarsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemdir við að lóðarhafi Hrauntungu 119 girði sína lóð af og loki fyrir aðkomu göngustígs um lóð sína. Vísað er til umhverfissvið að fundin verði lausn á nýtingu stígsbút sem lokað verður.

05

Rafhleðsla ökutækja í Kópavogi.

Umsögn umhverfissviðs varðandi erindi Hákons Gunnarssonar um stefnu Kópavogsbæjar varðandi uppsetningar á hleðslustöðvum fyrir rafbíla. Erindinu var vísað til umsagnar umhverfissviðs á fundi nefndarinnar 5. júlí síðastliðinn.

Málinu frestað til næsta fundar.

06

Fundarröð umhverfis- og samgöngunefndar

Tillaga að fundarröð umhverfis- og samgöngunefndar út árið 2022.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða fundarröð til loka 2022.

Indriði Stefánsson setur fyrirvara við lögmæti 154. fundar umhverfis- og samgöngunefndar.