Til baka í nefndaryfirlit
Ungmennaráð - 57. fundur
í Molanum ungmennahúsi Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Styrmir Steinn Sigmundsson - aðalmaður
- Klara Rós Bergmann - aðalmaður
- Óðinn Helgi Pálsson - aðalmaður
- Níels Jóhann Júlíusson - aðalmaður
- Emilía Ísis Nökkvadóttir - aðalmaður
- Dagbjartur Bergmann Jóhannsson - aðalmaður
- Bára Freydís Þórðardóttir - aðalmaður
- Magnús Ingi Árnason - aðalmaður
Starfsmenn
- Áslaug Einarsdóttir - starfsmaður menntasviðs
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - embættismaður
Ritari
- Áslaug Einarsdóttir
Dagskrá fundar
Umræða og undirbúningur fyrir barna- og ungmennaþing 2026.
Barnaþing Kópavogs verður haldið 18.mars 2026, ungmennaráð mun taka virkan þátt á Barnaþingi. Eldri hluti ungmennaráðsins skipuleggur Ungmennaþing með starfsfólki Molans og verkefnastjóra Frístundadeildar.
Óskað er eftir umsögn ungmennaráðs Kópavogs í Samráðsgátt Mennta-og barnamálaráðuneytisins á áformum um mótun ungmennastefnu.
Fulltrúar ungmennaráðsins fagna áformum um gerð ungmennastefnu og ætla að skila inn umsögn í samráðsgáttina á næstu dögum.