Ungmennaráð - 14. fundur
í Vatnsendaskóla
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Katrín Rós Þrastardóttir - aðalfulltrúi
- Unnur María Agnarsdóttir - aðalfulltrúi
- Gunnlaugur Ernir Ragnarsson - aðalfulltrúi
- Þyrí Ljósbjörg Willumsdóttir - aðalfulltrúi
- Hilmar Karlsson - aðalfulltrúi
- Oskar Einar Bukowski - aðalfulltrúi
- Sigríður Lára Ingibjörnsdóttir - aðalfulltrúi
- Hrefna Tryggvadóttir - aðalfulltrúi
- Katla Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
Starfsmenn
- Steinar Már Unnarsson - starfsmaður menntasviðs
Ritari
- Steinar Már Unnarsson
Dagskrá fundar
Auður Finnbogadóttir verkefnastjóri stefnumótunar kynnir stöðu innleiðingar stefnu og Heimsmarkmiðanna. María Kristín Gylfadóttir verkefnastjóri á menntasviði ræðir samvinnu og aðkomu ungmennaráðs að kortlagningu/innleiðingu Heimsmarkmiðana.
Ungmennaráð lítur á innleiðingar stefnu og Heimsmarkmiðin jákvæðum augum og sömuleiðis samvinnu og aðkomu ungmennaráðs varðandi innleiðinguna Heimsmarkmiðanna.
Hilmar Karlsson, Oskar Einar Bukowski og Gunnlaugur Ernir Ragnarsson koma inn á fund kl. 18:15.
Katrín Rós Þrastardóttir kom inn á fund kl. 18:26.
Anna Elísabet Ólafsdóttir sérfræðingur í lýðheilsumálum óskar eftir umræðu um aðgerðaráætlun Barnasáttmálans og umsagnir henni tengdu.
Mikilvægt að horfa til aukinnar réttindafræðslu til barna í tengslum við innleiðingu Barnasáttmálans, sem og fræðslu til foreldra barna sem hafa annað móðurmál en íslensku er varðar Barnasáttmálann.
Ungmennaráð ræðir tillögur að fyrirkomulagi og vinnufundi í tengslum við ungmennaþing sem haldið verður í mars 2020.
Stefnt að vinnufundi 7.febrúar nk. í tengslum við undirbúning á ungmennaþingi ungmennaráðs.
Hrefna Tryggvadóttir fer af fundi kl. 19:30.