Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Velferðar- og mannréttindaráð - 9. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Björg Baldursdóttir - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Sigrún Bjarnadóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Svava Halldóra Friðgeirsdóttir - aðalmaður
  • Matthías Björnsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Signý Sigurrós Skúladóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Hólmfríður Hilmarsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
  • Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Sigrún Þórarinsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs
  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir

Dagskrá fundar

Skrifstofa Félagslegs húsnæðis

01

Félagsleg leiguíbúð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 30.09.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.


Gestir

  • Rannveig Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:15
Skrifstofa Félagslegs húsnæðis

02

Félagsleg leiguíbúð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 21.09.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

Rannveig Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 16:25.


Gestir

  • Rannveig Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:15
Skrifstofa Barnaverndarþjónustu

03

Miðlægt bráða- og viðbragðsteymi

Sérfræðingur farsældarsviðs Barna- og fjölskyldustofu kynnir miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna sem er samvinnuverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, Barna- og fjölskyldustofu og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu.

Margrét Edda Yngvadóttir vék af fundi kl. 16.55.


Gestir

  • Margrét Edda Yngvadóttir, sérfræðingur - mæting: 16:25
  • Dagbjört Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:25
Skrifstofa Barnaverndarþjónustu

04

Kynning á skrifstofu barnaverndarþjónustu

Skrifstofustjóri barnaverndarþjónustu kynnir stöðu mála á bakvakt barnaverndarþjónustu og í málefnum barna með fjölþættan vanda.

Velferðar- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri alvarlegu stöðu sem er uppi þegar kemur að þjónustu við börn og ungmenni sem þurfa á meðferðarúrræðum að halda hvort heldur sem er vegna fjölþætts vanda eða meðferðarúrræði vegna fíknivanda.

Dagbjört Guðmundsdóttir vék af fundi kl. 17.25.


Gestir

  • Dagbjört Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:25
Almenn erindi

05

Reglur um notendasamninga

Lögð fram til afgreiðlsu drög að nýjum reglum Kópavogsbæjar um notendasamninga.

Velferðar- og mannréttindaráð vísar drögum að nýjum reglum um notendasamninga til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.

Almenn erindi

06

Styrkir velferðar- og mannréttindaráðs Kópavogs

Lögð fram til kynningar drög að auglýsingu ásamt tillögu að umsóknarfresti vegna styrkja velferðar- og mannréttindaráðs á árinu 2025.

Lagt fram.

Almenn erindi

07

Tölulegar upplýsingar velferðarsviðs

Lagðar fram til kynningar tölulegar upplýsingar um starfsemi velferðarsviðs maí til ágúst 2025.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

08

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 22. fundur frá 06.10.2025

Fundargerð í sex liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

09

Öldungaráð - 29. fundur frá 09.10.2025

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.

Önnur mál

10

Kynning á starfsemi velferðarsviðs

Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðar- og mannréttindaráðs.