Velferðar- og mannréttindaráð - 12. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Björg Baldursdóttir - formaður
- Sigrún Bjarnadóttir - varaformaður
- Svava Halldóra Friðgeirsdóttir - aðalmaður
- Matthías Björnsson - aðalmaður
- Hólmfríður Hilmarsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllHelga G. Halldórsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
- Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
- Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Sigrún Þórarinsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir
Dagskrá fundar
Áfrýjun dags. 02.12.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Gestir
- Auður Birgisdóttir, lögmaður - mæting: 16:15
- Rannveig Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:15
Mál tekið inn með afbrigðum. Áfrýjun dags 17.11.2925, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Gestir
- Rannveig Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:15
- Auður Birgisdóttir, lögmaður - mæting: 16:15
Áfrýjun dags. 25.11.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Gestir
- Auður Birgisdóttir, lögmaður - mæting: 16:15
- Þóra Kemp, skrifstofustjóri - mæting: 16:38
Lagður fram til afgreiðslu viðauki við samning um samræmda móttöku vegna ársins 2026.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti að ritað verði undir viðauka III við núgildandi samning um móttöku flóttafólks. Málinu vísað áfram til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.
Gestir
- Þóra Kemp, skrifstofustjóri - mæting: 16:38
- Auður Birgisdóttir, lögmaður - mæting: 16:15
Niðurstöður frumkvæðisathugunar lagðar fram til kynningar.
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir kynninguna og óskar eftir minnisblaði þar sem viðbrögð velferðarsviðs við niðurstöðum frumkvæðisathugunnar eru tekin saman. Ráðið hvetur sviðsstjóra velferðarsviðs til að óska eftir samtali við Gæða- og eftirlitsstofnun.
Gestir
- Auður Birgisdóttir, lögmaður - mæting: 16:15
- Dagbjört Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:48
- Þóra Kemp, skrifstofustjóri - mæting: 16:38
Lögð fram til kynningar og afgreiðslu uppfærð gjaldskrá vegna stuðningsþjónustu í formi heimastuðnings.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir uppfærða gjaldskrá vegna stuðningsþjónustu og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.
Gestir
- Hlín Sigurþórsdóttir, verkefnastjóri - mæting: 17:52
Frá Stígamótum, dags. 30.10.2024, lögð fram umsókn um styrk.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir að veita Stígamótum styrk að upphæð kr. 700.000.- fyrir árið 2025 gegn framvísun ársreiknings.
Gestir
- Hlín Sigurþórsdóttir, verkefnastjóri - mæting: 00:00
Lagðar fram til afgreiðslu styrkbeiðnir sem borist hafa velferðar- og mannréttindaráði vegna ársins 2026.
Velferðar- og mannréttindaráði bárust tuttugu og tvær styrkbeiðnir vegna ársins 2026.
Samþykkt að veita eftirfarandi umsækjendum styrki:
Karlar í skúrum - 500.000 kr.
Soroptimistaklúbbur Kópavogs - 200.000 kr.
Afstaða - réttindafélag - 200.000 kr.
Skjólið - Hjálparstarf kirkjunnar - 300.000 kr.
Samtök um kvennaathvarf - 1.000.000 kr.
Bergið headspace - 500.000 kr.
ADHD samtökin - 100.000 kr.
Stígamót - 1.000.000 kr.
Bjarkarhlíð - 500.000 kr.
Matthildur - samtök um skaðaminnkun - 500.000 kr.
Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi - 200.000 kr.
Gestir
- Hlín Sigurþórsdóttir, verkefnastjóri - mæting: 00:00
Tillaga að fundaröð velferðar- og mannréttindaráðs vegna ársins 2026 lögð fram til afgreiðslu.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir framlagða tillögu að fundaröð velferðarráðs fyrir árið 2026.
Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðar- og mannréttindaráðs.