Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Velferðarráð - 95. fundur

Fjarfundur - Microsoft Teams

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Baldur Þór Baldvinsson - aðalmaður
  • Björg Baldursdóttir - aðalmaður
  • Donata Honkowicz Bukowska - aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
  • Halla Kari Hjaltested - aðalmaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Rannveig María Þorsteinsdóttir - yfirmaður ráðgjafa- og íbúðadeildar
  • Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs

Ritari

  • Rannveig María Þorsteinsdóttir

Dagskrá fundar

01

Teymisfundir 2021

Fundargerðir 46.-51. fundar lagðar fram til upplýsingar.

Lagt fram.

02

Úthlutunarfundir velferðarráð

Fundargerð 186. fundar lögð fram til upplýsinga.

Lagt fram.

03

Umsagnarmál. Stuðningsfjölskylda

Umsókn ódagsett, ásamt þar til greindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Velferðarráð samþykkti að veita leyfi til að starfa sem stuðningsfjölskylda.

Fært í trúnaðarbók.

04

Beiðni um styrk fyrir rekstur Stígamóta 2022

Styrkbeiðni og greinargerð verkefnastjóra velferðsviðs dags. 10.1.2022. Lagt fram til afgreiðslu.

Velferðarráð samþykkti að veita Stígamótum styrk að upphæð kr. 1.000.000 fyrir árið 2022 gegn framvísun ársreiknings.

05

Teymi um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar Covid-19

17. stöðuskýrsla uppbyggingarteymis og kynning Vinnumálastofnunar lagðar fram til upplýsingar.

Lagt fram.

06

Viðbrögð við Covid-19 faraldrinum

Farið yfir stöðuna á velferðarsviði vegna áhrifa Covid 19 á starfsemina.

Sviðsstjóri fór yfir stöðuna á velferðarsviði vegna Covid-19 og áhrif á starfsemi og þjónustu sviðsins.

Velferðarráð Kópavogsbæjar vill koma á framfæri sérstöku þakklæti til alls starfsfólks velferðarsviðs sem staðið hefur vaktina á meðan heimsfaraldur hefur geisað, með eindæma æðruleysi, sveigjanleika og mikilli fórnfýsi í starfi. Starfsfólk velferðarsviðs er í framvarðasveit þar sem velferðarþjónustan er samfélagslega mikilvæg og hefur starfsfólk gert allt til þess að tryggja að nauðsynleg þjónusta falli ekki niður.