Velferðarráð - 40. fundur
í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Guðmundur Gísli Geirdal - formaður
- Ragnheiður S Dagsdóttir - aðalmaður
- Baldur Þór Baldvinsson - aðalmaður
- Björg Baldursdóttir - aðalmaður
- Donata Honkowicz Bukowska - aðalmaður
- Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllTómas Þór Tómasson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Andrés Pétursson - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Aðalsteinn Sigfússon - félagsmálastjóri
- Anna Klara Georgsdóttir - Yfirmaður þjónustudeildar aldraðra
Ritari
- Anna Klara Georgsdóttir
Dagskrá fundar
Samstarfsskýrsla lögð fram til kynningar.
Fulltrúar samstarfsteymis; Ingunn Mjöll Birgisdóttir og Ragnheiður Hermannsdóttir á menntasviði og Guðlaug Ósk Gísladóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir á velferðarsviði, kynntu samstarfsverkefni sviðanna.
Velferðarráð þakkar fyrir kynningu á því samstarfi sem er á milli velferðar- og menntasviðs. Samstarfið er árangursríkt og metnaðarfullt og afar ánægjulegt að sjá hve vel sviðin vinna saman íbúum til hagsbóta.
Fundir 5 og 6 lagðir fram til kynningar
Lagt fram.
Gestir
- Rannveig María Þorsteinsdóttir, deildarstjóri - mæting: 16:43
Fundargerð 153. fundar lögð fram til kynningar
Lagt fram.
Gestir
- Rannveig María Þorsteinsdóttir, deildarstjóri - mæting: 16:43
Samningur lagður fram til afgreiðslu.
Velferðarráð samþykkti framlagðan samning fyrir sitt leyti og vísaði til afgreiðslu bæjarráðs.
Gestir
- Guðlaug Ósk Gísladóttir, deildarstjóri - mæting: 16:55
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Á fundi velferðarráðs þann 27.08.2018 óskaði undirrituð eftir því að til skoðunar yrði tekið að afmá persónugreinanlegar upplýsingar úr gögnum teymisfunda ráðgjafa- og íbúðadeildar sem lögð eru fyrir ráðið. Óskað er eftir upplýsingum um stöðu mála."