Velferðarráð - 127. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Björg Baldursdóttir - formaður
- Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
- Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Hólmfríður Hilmarsdóttir - aðalmaður
- Matthías Björnsson - aðalmaður
- Páll Marís Pálsson - aðalfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir
Dagskrá fundar
Drög að nýjum reglum Kópavogsbæjar um stuðnings- og stoðþjónustu lögð fram til kynningar og umræðu ásamt minnisblaði verkefnastjóra dags. 22.11.2023 og tilgreindum fylgiskjölum.
Velferðarráð vísar drögum að nýjum reglum um stuðnings- og stoðþjónustu til kynningar og umræðu í öldungaráði og notendaráði í málefnum fatlaðs fólks.
- Minnisblað - nýjar reglur um stuðnings og stoðþjónustu fyrir fullorðið fólk
- Fylgiskjal 1 - Drög að reglum um stuðningsþjónustu
- Fylgiskjal 2 - Drög að reglum um stoðþjónustu fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
- Fylgiskjal 3 - Frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
- Fylgiskjal 4 - Frumvarp til laga um breytingar á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga
- Fylgiskjal 5 - Reglur um stuðningsþjónustu við fatlað fólk
- Fylgiskjal 6 - Reglur um félagslega heimaþjónustu í Kópavogsbæ
Skrifstofustjóri kynnir starfsemi skrifstofunnar.
Velferðarráð þakkar fyrir góða kynningu.
Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.
Lagt fram.
Lögð fram tillaga velferðarsviðs dags. 23.11.2023, um þátttöku í lengri opnun kaffistofu Samhjálpar, ásamt tilgreindu fylgiskjali.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti þátttöku Kópavogsbæjar í lengri opnun á kaffistofu Samhjálpar og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lögð fram til kynningar drög að endurnýjuðum þjónustusamningi við Samhjálp um rekstur áfangaheimilis.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti endurnýjun samnings um rekstur áfangaheimilis við Samhjálp og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lögð fram til kynningar og umræðu tillaga starfshóps um helgaropnun félagsmiðstöðva aldraðra í Kópavogi dags. 21.11.2023 ásamt umsögn velferðarsviðs um tillöguna dags. 22.11.2023.
Velferðarráð vísar málinu til sviðsstjóra velferðarsviðs til frekari skoðunar.