Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Velferðarráð - 93. fundur

Fjarfundur - Microsoft Teams

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Baldur Þór Baldvinsson - aðalmaður
  • Björg Baldursdóttir - aðalmaður
  • Donata Honkowicz Bukowska - aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
  • Halla Kari Hjaltested - aðalmaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Anna Klara Georgsdóttir - Yfirmaður þjónustudeildar aldraðra
  • Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs

Ritari

  • Anna Klara Georgsdóttir

Dagskrá fundar

01

Lýðheilsustefna 2022-2025

Drög að endurskoðaðri lýðheilsustefnu lögð fram til umsagnar, sbr. bókun bæjarráðs dags. 29.10.2021.

Lagt fram.

Ábendingar nefndarmanna verða sendar verkefnastjóra lýðheilsumála.

02

Teymisfundir ráðgjafa og íbúðadeildar

Fundargerðir 40.-45. fundar lagðar fram til upplýsingar.

Lagt fram.

03

Úthlutunarfundir félagslegs leiguhúsnæðis

Fundargerðir 184.-185. fundar lagðar fram til upplýsingar.

Lagt fram.

04

Áfrýjun. Félagsleg leiguíbúð

Áfrýjun dags. 12.11.2021, ásamt þar til greindum fylgigögnum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

05

Teymisfundir þjónustu- og ráðgjafardeildar fatlaðra

Fundargerðir 38. - 41. fundar lagðar fram til upplýsingar.

Lagt fram.

06

Umsagnarmál. Stuðningsfjölskylda

Umsókn dags. 03.11.2021, ásamt þar til greindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Velferðarráð samþykkti að veita leyfi til að starfa sem stuðningsfjölskylda. Fært í trúnaðarbók.

07

Umsagnarmál. Stuðningsfjölskylda

Umsókn ódagsett, ásamt þar til greindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Velferðarráð samþykkti að veita leyfi til að starfa sem stuðningsfjölskylda. Fært í trúnaðarbók.

08

Kæra nr.287-2021. NPA. Ættingjaaðstoð.

Úrskurður nr. 287/2021 um NPA - ættingjaaðstoð lagður fram til upplýsingar.

Lagt fram.

09

Athugun á áhrifum Covid-19 á gæðum þjónustu við fatlað fólk

Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar gerði athugun á áhrifum COVID-19 á gæði þjónustu við fatlað fólk á tímabilinu nóvember 2020 til apríl 2021. Skýrsla lögð fram til upplýsingar.

Lagt fram.

Vísað til notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks til upplýsingar.

10

Teymisfundir þjónustu- og ráðgjafardeildar aldraðra

Fundargerðir 41.- 44. fundar lagðar fram til upplýsingar.

Lagt fram.

11

Innlitsþjónusta. Svar við fyrirspurn

Á 92. fundi velferðarráðs kom fram beiðni um upplýsingar um stöðu mála í félagslegri heimaþjónustu. Greinargerð deildarstjóra, dags. 15.11.2021 lögð fram til upplýsingar.

Lagt fram.

Velferðarráð þakkar fyrir framlagða greinargerð en lýsir á sama tíma yfir áhyggjum af þeirri stöðu sem komin er upp í heimaþjónustu við aldraða. Vegna Covid-19 er í dag ekki hægt að veita öllum notendum nauðsynlega þjónustu og mikið álag er á starfsfólki.

12

Roðasalir. Kröfulýsing

Kröfulýsing hjúkrunarsambýlisins Roðasölum 1 lögð fram til upplýsingar.

Lagt fram.

13

Fyrirspurn. Notendur fjárhagsaðstoðar

Kristín Sævarsdóttir og Donata H. Bukowska lögðu fram eftirfarandi fyrirspurn:

"Óskað er eftir nákvæmri greiningu á hópnum sem þiggur fjárhagsaðstoð.

Hversu margir þáðu fjárhagsaðstoð við síðustu úttekt?

Hversu mörg voru þau á sama tíma á síðasta ári?

Hversu margir þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð eru með fulla fjárhagsaðastoð?

Hvernig er aldurskiptingin?

Hversu lengi hefur fólk verið á fjárhagsaðstoð?

Hversu margir af heildarfjöldanum teljast með fulla starfsgetu?

Hversu margir teljast með getu til að sinna hlutastarfi?

Hvaða vinnustaðir og vinnuúrræði standa notendum fjárhagsaðstoðar til boða?"

Karen Halldórsdóttir bókaði:

"Óska einnig eftir yfirliti yfir fjölda erlendra ríkisborgara sem fengið hafa fjárhagsaðstoð sl. 10 ár."