Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Velferðarráð - 118. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Björg Baldursdóttir - formaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
  • Erlendur H. Geirdal - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Hólmfríður Hilmarsdóttir - aðalmaður
  • Matthías Björnsson - aðalmaður
  • Páll Marís Pálsson - aðalfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir

Dagskrá fundar

Ráðgjafar- og íbúðadeild

01

Samræmd móttaka flóttafólks

Lögð fram til kynningar kostnaðargreining samræmdrar móttöku flóttafólks í Kópavogi.

Velferðarráð þakkar fyrir kynninguna.


Gestir

  • Atli Sturluson, skrifstofustjóri - mæting: 16:15
  • Rannveig Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:15
  • Kristín Egilsdóttir, sviðsstjóri - mæting: 16:15
Ráðgjafar- og íbúðadeild

02

Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 14.4.2023, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.


Gestir

  • Rannveig Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:15
Ráðgjafar- og íbúðadeild

03

Fjárhagsaðstoð 2023 - Umboðsmaður óskar upplýsinga um afgreiðslu máls

Lögð fram til kynningar upplýsingabeiðni umboðsmanns Alþingis dags. 9.3.2023, svar Kópavogsbæjar dags. 21.3.2023 ásamt svari umboðsmanns dags. 27.3.2023.

Lagt fram.


Gestir

  • Rannveig Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:15
Almenn erindi

04

Bókanir funda stjórnar SSH. Heimilislausir með fjölþættan vanda

Lögð fram til kynningar og umræðu bókun stjórnar SSH - fundur 556 dags. 17.4.2023, skýrsla samstarfsverkefnis í málefnum heimilislausra dags. 30.3.2023 ásamt helstu niðurstöðum og tillögum.

Velferðarráð þakkar fyrir framkomna skýrslu samstarfsverkefnis í málefnum heimilislausra og kynninguna á helstu niðurstöðum og tillögum.


Gestir

  • Rannveig Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:15
Almenn erindi

05

Kynning á starfsemi velferðarsviðs

Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.

Þjónustu- og ráðgjafardeild aldraðra

07

Fyrirspurn um þróun á biðlistum eftir dagdvöl aldraðra í Kópavogi frá formanni velferðarráðs

Minnisblað verkefnastjóra velferðarsviðs dags. 18.4.2023 lagt fram.

Lagt fram.

Fundargerð

08

Öldungaráð - 21. fundur frá 30.03.2023

Lagt fram.