Auglýsingastyrkir
Á hverju ári veitir Kópavogsbær auglýsingastyrki vegna fjölmargra verkefna, aðallega innan bæjarfélagsins.

Tilgangurinn er að styðja við góð málefni sem byggja á styrkjum, frjálsum framlögum og sjálfboðastarfi. Því miður er ekki hægt að verða við öllum beiðnum og eru hér því birtar reglur til viðmiðunar:
Til skoðunar getur komið að veita auglýsingastyrki með birtingu á merki bæjarins vegna eftirtalinna málefna:
- Heimili, fjölskylda, forvarnir, uppeldismál.
- Menningarstarfsemi, íþróttastarfsemi, æskulýðsmál.
- Heilsa og heilbrigði.
Ef styrktarbeiðnin fellur að styrktarstefnu Kópavogsbæjar vinsamlegast fyllið út umsókn.
Rétt er að undirstrika að ekki er sjálfkrafa hægt að gera ráð fyrir að auglýsingastyrkir verði veittir.
Öll styrktarerindi eru tekin fyrir og verður svarað með tölvupósti eigi síðar en 2 vikum eftir að erindi berst.
Auglýsingar
Gerður er skýr greinarmunur á auglýsingum og styrkjum. Nánari upplýsingar um auglýsingar og auglýsingastyrki hjá Kópavogsbæ gefur almannatengill Kópavogsbæjar Sigríður Björg Tómasdóttir í síma 441 0000.
Allar auglýsingabeiðnir eru teknar fyrir og verður svarað eigi síðar en 2 vikum eftir að erindi berst.