Vinnustaðurinn
Verið velkomin að fræðast meira um Kópavogsbæ sem eftirsóknarverðan vinnustað.
Starfsemi
Gildi Kópavogsbæjar eru Umhyggja, Framsækni, Heiðarleiki, og Virðing sem endurspeglast í mannauðsstefnunni og þeirri vinnu sem við vinnum af hendi sem starfsfólk Kópavogsbæjar.
Kópavogsbær er næststærsta sveitarfélag landsins með um 40 þúsund íbúa og er jafnframt þriðji stærsti vinnustaður landsins á opinberum vinnumarkaði. Hjá Kópavogsbæ starfa um 2.900-3.000 einstaklingar á um 75 starfsstöðum.
Starfsemin fer fram á þremur fagsviðum; menntasviði, umhverfissviði og velferðarsviði. Auk fagsviðanna eru fimm miðlægar skrifstofur: skrifstofa bæjarritara, skrifstofa mannauðs- og kjaramála, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Sjá nánar.