Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB
Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 hefst kl. 9.00 og lýkur kl 22.00
Kjörstaðir í Kópavogi eru tveir, íþróttahúsið Smárinn og íþróttahúsið Kórinn.
Hvar á ég að kjósa?
Allar upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu 2026 er að finna á kosningavef stjórnarráðssins, kosning.is
Kjósendur geta kannað hvar þeir eru á kjörskrá með því að fara inn á þessa síðu Hvar á ég að kjósa?
Íbúar vestan Reykjanesbrautar og í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu Smáranum, Dalsmára 5. Íbúar austan Reykjanesbrautar að frátöldum þeim sem búa í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu Kórnum, Vallakór 12.
Um kosninguna
Kjörfundur hefst kl. 09.00 og lýkur 22.00.
Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér á kjörstað með því að framvísa persónuskilríki eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar.
Kjörstjórn
- Yfirkjörstjórn í Kópavogi skipa: Helgi Magnússon, Gunnar Gylfason og Jón Guðlaugur Magnússon.
- Starfsmaður yfirkjörstjórnar er Anna Kristín Guðmundsdóttir, kosningar(hjá)kopavogur.is
- Aðsetur kjörstjórnar á kjördag verður í íþróttahúsinu Smáranum.
Kjörskrá
Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu liggur frammi í þjónustuveri á Bæjarskrifstofum Kópavogs, Digranesvegi 1, frá og með 8. ágúst 2026.
Kosning utan kjörfundar
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla við embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu vegna þjóðaratkvæðagreiðslu hófst 27. júlí 2026. Staðsetning er í Hlíðasmára 1, Kópavogi, jarðhæð, gengið inn á bakvið hús.
Hlíðarsmári 1 - opnunartími:
- 4. ágúst - 23. ágúst, kl. 10.00 - 18.00
- Opið á laugardögum og sunnudögum
- 24. ágúst til 28. ágúst frá kl. 10.00 til 21.00
- Á kjördag laugardaginn 29. ágúst verður opið frá kl. 10.00 - 17.00 fyrir kjósendur sem ekki geta sótt kjörfund.
Frá og með 17. ágúst var einnig hægt kjósa utan kjörfundar í Kringlunni. Atkvæðagreiðslan fer fram á jarðhæð Kringlunnar og er staðsett til móts við verslunina Hrím og við hlið verslunarinnar Kúnígúnd.
Kringlan - opnunartími:
- Virka daga 17. til 28. ágúst frá kl. 12.00-18.30
- Laugardaginn 22. ágúst frá kl. 12.00-18.00
- Sunnudaginn 23. ágúst frá kl. 12.00-17.00
- Kjördagur 29. ágúst - lokað
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.