1. bekkur-afritun
Hér fyrir neðan birtast leiðir til að hjálpa barninu að æfa þá færni sem þarfnast þjálfunar.
Með því að velja viðeigandi skimun og viðmið hér að ofan færðu viðeigandi leiðir til að þjálfa barnið.
Skimanir lagðar fyrir
Hvað metur prófið?
Prófið metur stöðu stafaþekkingar.
Fyrir hverja?
Alla nemendur í upphafi skólaárs og aftur eftir að stafainnlögn lýkur. Ef nemendur hafa ekki náð tökum á tengslum bókstafa og hljóða að lokinni stafainnlögn skal leggja könnunina fyrir í þriðja sinn undir lok maímánaðar.
Tímabil
Ágúst, febrúar/mars (eftir að stafainnlögn er lokið) og í lok maí (fyrir afmarkaðan hóp nemenda, sjá ofar).
Ábyrgðaraðili
Deildarstjóri stoðþjónustu ber ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að könnun sé lögð fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. Umsjónarkennari, sérkennari eða annar kennari skólans sér um fyrirlögn.
Hvað metur prófið?
Skimunin veitir upplýsingar um stöðu málþroska, stafaþekkingar og hljóðkerfisvitundar og gefur vísbendingar um hvaða börn það eru sem glíma mögulega við vanda í undirstöðuþáttum lestrar.
Fyrir hverja?
Lögð fyrir alla nemendur
Tímabil
Október
Ábyrgðaraðili
Deildarstjóri stoðþjónustu ber ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að könnun sé lögð fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. Umsjónarkennari, sérkennari eða annar kennari skólans sér um fyrirlögn.
Hvað metur prófið?
Færni í sjálfvirkum, nákvæmum og fyrirhafnarlausum lestri.
Fyrir hverja?
Alla nemendur
Tímabil
September, janúar og maí. Fyrirlögn í september er hugsuð sem grunnmæling hjá nemendum í 1. bekk.
Ábyrgðaraðili
Deildarstjóri stoðþjónustu ber ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að prófið sé lagt fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. Umsjónarkennari, sérkennari eða annar kennari skólans sér um fyrirlögn.
Hvað metur prófið?
Þekkingu á tengslum bókstafs og hljóðs. Prófið gefur vísbendingar um hvort nemandi geti beitt hljóðaaðferðinni og umskráð texta af öryggi.
Fyrir hverja?
Lagt fyrir alla nemendur sem fá mælitölur á bilinu 1-7 á lesfimiprófi.
Tímabil
September, janúar og maí.
Ábyrgðaraðili
Deildarstjóri stoðþjónustu ber ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að prófið sé lagt fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. Umsjónarkennari, sérkennari eða annar kennari skólans sér um fyrirlögn.
Hvað metur prófið?
Aldurstengdan námsorðaforða nemenda á íslensku.
Fyrir hverja?
Nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Tímabil
Október-janúar
Ábyrgðaraðili
Deildarstjóri stoðþjónustu og/eða ÍSAT kennari ber ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að prófið sé lagt fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. ÍSAT kennari og/eða umsjónarkennari um fyrirlögn.