Beint í efni

Sækja um bygg­ing­ar­leyfi

Leiðbeiningar um hvernig sótt er um byggingarleyfi skref fyrir skref.

Þarf ég leyfi?

Skref 1

Eigendur geta sótt um sjálfir eða veitt hönnunarstjóra umboð til þess.

Með umsókn þarf að fylgja:

  • Upplýsingar um lóð.
  • Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
  • Teikningar.
  • Önnur gögn sem geta auðveldað vinnslu umsóknarinnar.

Greiða þarf þjónustugjald samkvæmt gjaldskrá hér að neðan.

Strax í þessu skrefi getur eigandi tilkynnt um ráðningu hönnuðar á verkið.

Skref 2

Umsókn er tekin fyrir af starfsfólki byggingarfulltrúa.

  • Ef gögn vantar eða þau talin ófullnægjandi verður hönnuður látinn vita.
  • Fundað er aðra hverja viku og eru mál þá tekin fyrir.
  • Ef gerðar eru athugasemdir fær hönnuður tölvupóst með beiðni um leiðréttingar eða viðbótargögn.
  • Berist umbeðin gögn ekki innan 12 mánaða fellur umsókn niður og teikningum er fargað.

Skref 3

Samþykki byggingarfulltrúa

  • Þegar byggingaráform hafa verið samþykkt færðu tölvupóst með upplýsingum um næstu skref, hvaða gögnum þarf að skila og hvaða gjöld þarf að greiða.
  • Eigandi fær kröfu í heimabanka vegna gjaldanna.
  • Eigandi þarf að skrá ráðningu hönnuðar á Minn Kópavogur.
  • Hönnuðir skila séruppdráttum og öðrum nauðsynlegum gögnum rafrænt á Minn Kópavogur.

Skref 4

Skráning byggingarstjóra og iðnmeistara

  • Skrá þarf byggingarmeistara á verkið í gegnum Minn Kópavogur.
  • Byggingarstjóri skráir þá iðnmeistara sem koma að verkinu á Minn Kópavogur.
  • Iðnmeistarar staðfesta þátttöku sína í verkinu á Minn Kópavogur.

*Bæta við linkum

Skref 5

Lokaúttekt

  • Þegar framkvæmd er lokið er sótt um lokaúttekt á Minn Kópavogur.
  • Starfsmaður byggingarfulltrúa mætir á svæðið og tekur verkið út.
  • Að lokinni úttekt fá byggingarstjóri og eigandi sent lokaúttektarvottorð.
Sækja um byggingarleyfi - Kópavogsbær