Lóðagjöld
Lóðagjöld eru gjöld sem greiðast við úthlutun lóða og byggingu mannvirkja.
Hvað þarf ég að vita?
Við úthlutun lóðar fyrir íbúðarhúsnæði eru reiknuð gjöld fyrir byggingarrétt og gatnagerð. Lágmarksgjald miðast við 70% af hámarksfermetrum byggingar sem heimilt er að reisa á lóðinni samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Endanleg gjöld miðast við samþykkta stærð mannvirkis og eru lögð á við samþykkt byggingaráforma og aðalteikninga.
Lóðagjöld taka breytingum í samræmi við byggingarvísitölu.
Lóðagjöld samanstanda meðal annars af gjaldi fyrir byggingarrétt og gatnagerðargjaldi. Gatnagerðargjaldi er ætlað að standa undir kostnaði sveitarfélagsins við gatnagerð og uppbyggingu innviða á nýjum byggingarsvæðum.
Við útgáfu byggingarleyfis eru einnig lögð á:
- Byggingarleyfisgjald.
- Heimæðagjöld vatns og fráveitu.
- Mælingargjöld.
- Gjöld fyrir úttektir og vottorð.
Við úthlutun lóðar fyrir íbúðarhúsnæði eru reiknuð lóðagjöld vegna byggingarréttar og gatnagerðargjöld.
Lágmarksgjald fyrir byggingarrétt og gatnagerðargjöld er 70% af hámarksfermetrum byggingar sem reisa má á viðkomandi lóð samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Fyrir sameiginlegar bílageymslur greiðast 25% af gatnagerðargjaldi íbúðarhúsnæðis.
Athugið að lágmarksgjald er ekki endurgreitt þótt leyfi fáist fyrir byggingu sem er minni en 70% af hámarksstærð byggingar samkvæmt gildandi deiliskipulagi.
Endanleg gjöld eru ákvörðuð þegar byggingaráform og aðalteikningar hafa verið samþykkt. Þá miðast gjöld við raunverulega stærð mannvirkis.
Fyrir sameiginlegar bílageymslur greiðast 25% af gatnagerðargjaldi íbúðarhúsnæðis.
Greiða þarf lóðagjöld innan 30 daga frá staðfestri úthlutun lóðar.
Gjöld fyrir byggingarrétt og gatnagerð byggja á samþykktum bæjarstjórnar og gildandi gjaldskrám.
Athugið að gjaldskrár eru birtar með fyrirvara um villur.
Gatnagerðargjöld
Gatnagerðargjald er hlutfall af vísitöluhúsi samkvæmt útreikningi Hagstofu Íslands.
Vísitöluhús - október 2026: 323.401 kr.
Samþykkta gjaldskrá má finna hér
Þjónusta
Upphæð
Einbýlishús (15%) - (pr. m² )
48.510 kr.
Rað- par, tvíbýli- og keðjuhús (15%) - (pr. m² )
48.510 kr.
Fjölbýlishús (10%) - (pr. m² )
32.340 kr.
Bílakjallari og rými neðanjarðar
25% af kr/m2
Atvinnuhúsnæði (12%) - (pr. m² )
38.808 kr.
Aðrar byggingar (12%) - (pr. m² )
38.808 kr.