Samráð um ákveðin svæði
Kópavogsbær leitar reglulega til íbúa og hagaðila við skipulag og þróun einstakra svæða með það að markmiði að tryggja að uppbygging og ásýnd endurspegli þarfir, hugmyndir og upplifun þeirra sem búa við svæðin og/eða nota þau.
Menningarmiðja Kópavogs
Íbúar lögðu fram hugmyndir um þróun og nýtingu menningarsvæðisins, bæði innanhúss og á útisvæðum. Samhliða hugmyndasöfnun fór fram samráð um framtíðarsýn og hlutverk menningarmiðju í miðbæ Kópavogs, með áherslu á upplifun, aðgengi, fjölbreytni og samnýtingu rýma.
Heildarsýn fyrir Kópavogsdal
Samráð fór fram um framtíðarsýn fyrir útivistarsvæði í Kópavogsdal þar sem íbúar komu að mótun heildstæðrar og aðgengilegrar sýnar, með áherslu á útivist, náttúruvernd og tengingu svæðisins við nærliggjandi hverfi.
Hugmyndasöfnun um opið svæði í Hvörfunum
Rafræn hugmyndasöfnun fór fram þar sem íbúar lögðu fram tillögur um nýtingu opins svæðis í hverfinu, með áherslu á gæði umhverfis, afþreyingu og samfélagslega notkun.
Stelluróló endurgerður
Íbúar tóku þátt í að móta endurhönnun leiksvæðis með víðtæku samráði við börn, foreldra og íbúa, þar sem öryggi, aðgengi og leikgæði voru í forgrunni.