Beint í efni

Sam­ráð um stefn­ur og sátt­mála bæj­ar­ins

Stefnur og sáttmálar Kópavogsbæjar eru mótaðir í víðtæku samráði við íbúa, starfsfólk og hagaðila, þar sem lögð er rík áhersla á þátttöku til að tryggja að stefnumótun endurspegli raunverulegar þarfir samfélagsins og byggi á sameiginlegri framtíðarsýn.

  • Menntastefna Kópavogs

    Stefnan var unnin í víðtæku samráði við íbúa, börn, foreldra og starfsfólk, þar á meðal kennara, með áherslu á framtíðarsýn til 2030 um menntun og farsæld barna.

  • Menningarstefna Kópavogs

    Íbúasamráð fór fram um framtíðarsýn menningarstarfs í bænum og hvernig styðja megi við fjölbreytt, aðgengilegt og lifandi menningarlíf.

  • Jafnréttis- og mannréttindastefna Kópavogs

    Íbúar komu að mótun stefnu í samráði þar sem lögð var áhersla á að tryggja jafnræði, inngildingu og mannréttindi allra hópa í samfélaginu.

  • Lýðheilsustefna Kópavogs

    Samráð fór fram um heilsu og líðan íbúa með áherslu á forvarnir og aðgengi að heilbrigðum lífsstíl, þar sem íbúar lögðu fram hugmyndir að bættri lýðheilsu og vellíðan.

  • Samgöngustefna Kópavogs

    Íbúar komu að umræðu og mótun sjónarmiða um samgöngur, öryggi og sjálfbæra ferðamáta í bænum.

  • Barnasáttmálinn í Kópavogi

    Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna byggði á virkri þátttöku barna og ungmenna og tryggði að rödd þeirra heyrðist í ákvörðunum sem þau varða.

  • Heimsmarkmiðin í Kópavogi

    Samráð fór fram um hvernig bæjarfélagið vinnur að sjálfbærri þróun í samræmi við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Leitað var bæði til íbúa og starfsfólks og áhersla lögð á hvernig markmiðin eru innleidd í starfsemi og stefnumótun bæjarins.