Skipulagsmál
Íbúasamráð í skipulagsmálum er lögbundinn hluti af skipulagsferlinu á Íslandi, en Kópavogsbær leggur aukna áherslu á virkt og opið samráð umfram lagakröfur.
Í skipulagsmálum er íbúasamráð lögbundið samkvæmt skipulagslögum, þar sem tryggt er að almenningi sé gefið tækifæri til að kynna sér tillögur, koma á framfæri athugasemdum og hafa áhrif á mótun byggðar og umhverfis.
Í Kópavogi er lögð sérstök áhersla á vandað og virkt samráð og hefur verið sett sérstakt verklag sem miðar að því að efla þátttöku íbúa, tryggja gagnsæi og skapa raunveruleg áhrif íbúa á skipulagsferli. Verklagið byggir á gildandi lögum en gengur jafnframt lengra, meðal annars með því að leggja áherslu á aðkomu íbúa frá fyrstu stigum þegar við á, skýra upplýsingagjöf og markvissa endurgjöf á framkomnum sjónarmiðum.