Upplýsingafundir
Hér verða allir upplýsingafundir aðgengilegir er varða miðbæ í mótun. Upplýsingafundir verða haldnir við hvern fasa í byggingarferlinu og auglýstir með góðum fyrirvara.
Allar fyrirspurnir um Miðbæ í mótun skulu berast á netfangið midbaer@kopavogur.is. Til að gæta að skilvirkni í svörum biðlum við til íbúa að notast aðeins við það netfang.
Samskiptahópur framkvæmdaraðila og Kópavogsbæjar hefur verið settur á laggirnar og skipaður fulltrúi bæjarins er Herdís Guðrún Svansdóttir, verkefnastjóri á framkvæmdadeild Umhverfissviðs. Samskiptahópurinn leggur áherslu á gott samstarf og upplýsingaflæði á framkvæmdartíma til íbúa, t.a.m. með formlegum tilkynningum og fundum eftir þörfum.
30. júní 2026 kl. 16.00 í Barnaskóla Kársness
- Fundur um jarðvinnu á Fannborgarreit var haldinn þriðjudaginn 30.júní kl. 16.00 í Barnaskóla Kársness. Á fundinum komu fram mikilvægar upplýsingar um framvindu verkefnisins og næstu skref.
Upplýsingafundur 28. janúar kl. 16.30 - Borgum
- Fundur fyrir íbúa og fyrirtæki á Fannborgarreit var haldinn miðvikudaginn 28. janúar 2026, kl. 16.30 í Safnaðarheimilinu Borgum að Hábraut 1a í Kópavogi.
25. nóvember 2025 kl. 13.00 í Gjábakka
- Fundur fyrir íbúa í Fannborg 8, gesti Gjábakka og starfsfólk
18. nóvember 2025 kl. 16.30 í Kópavogsskóla
- Fundur fyrir íbúa og starfsfólk á áhrifasvæði Fannborgarreitsins
3. júlí 2025 kl. 15.00 í Gjábakka
- Fundur fyrir íbúa í Fannborg 8, gesti Gjábakka og starfsfólk
30. júní 2025 kl. 17.00 í Safnaðarheimili Kópavogskirkju
- Fundur fyrir íbúa og hagsmunaaðila á miðbæjarsvæðinu