Beint í efni

Garðlönd

Kópavogsbær leigir út reiti til matjurtaræktunar. Skilyrði fyrir úthlutun garðlands er að eiga lögheimili í Kópavogi.

Leiga fyrir 25 fermetra garðland er á 7.066 kr. og er hægt að leigja tvo reiti. Skiltum er komið fyrir sem sýna lista yfir leigjendur og legu garða.

Hvern­ig virk­ar þetta?

Leigjendur verða sjálfir að útvega sér áburð og plöntur.

Aðgangur að vatni er að finna á öllum stöðunum. Einnig eru verkfæri á staðnum, til dæmis:

  • Skóflur
  • Gafflar
  • Hrífur
  • Vatnskönnur
  • Hjólbörur

Ekki er hægt að tryggja nóg sé í boði fyrir öll.

Hluti garðlandanna er hugsaður fyrir þau sem vilja rækta fjölært grænmeti eins og:

  • Rabarbara
  • Graslauk og aðra lauka
  • Skessujurt og fleira.

Þeir skikar eru ekki plægðir á hverju vori eins og hin garðlöndin. Leigjendur sjá sjálfir um að stinga þá upp á vorin. Þau sem óska eftir slíkum garði þurfa að taka það fram í umsókninni.

Stað­setn­ing garð­landa

Opnað var fyrir umsóknir í mars 2026.

  • Við Geðræktarhúsið að Kópavogsgerði 8.
  • Í trjásafninu neðan Kjarrhólma í austanverðum Fossvogsdal.
  • Neðan við skólagarða í Víðigrund í vestanverðum Fossvogsdal.
  • Ofan við leikskólann Núp við Núpalind.
  • Við Guðmundarlund á Vatnsenda.

Skóla­garðar

Skólagarðar Kópavogs bjóða börnum á aldrinum 6-13 ára upp á tækifæri til að rækta sitt eigið grænmeti.

Nánar um skólagarða