Heilbrigðiseftirlit og dýrahald
Heilbrigðiseftirlitið sinnir eftirliti með umhverfi, matvælum og starfsemi sem getur haft áhrif á heilsu og öryggi. Eftirlitið hefur einnig umsjón með dýrahaldi og starfsleyfum og sinnir reglubundnu eftirliti með atvinnurekstri.
Umsóknir og leyfi
Heilbrigðiseftirlitið sér um leyfisveitingar og hefur eftirlit með dýrahaldi. Umsóknir um leyfi skulu berast þangað, að undanskildu leyfi fyrir hænsnahaldi sem sækja þarf um hjá þjónustuveri Kópavogsbæjar.
Heilbrigðiseftirlitið hefur eftirlit með samþykktum um hundahald sem gildir í Kópavogi.
Sótt er um hjá þjónustuveri Kópavogsbæjar.
Sækja þarf um starfsleyfi hjá heilbrigðiseftirliti fyrir rekstur sem er starfsleyfisskyldur samkvæmt lögum um hollustuhætti, mengunarvarnir og matvæli.
Heilbrigðiseftirlit Kópavogsbæjar
Heilbrigðiseftirlitið er í Hlíðasmára 14.
Sími: 550 5400
Hafa samband